Langidalur. Hressir og kátir skálaverðir FÍ í Langadal í Þórsmörk fyrir framan nýjan traktor félagsins í Langadal.

Lýðheilsu- og forvarnarverkefni Ferðafélags Íslands

DSC03195
Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ

Ferðafélag Íslands var stofnað 1927 og hefur það markmið að byggja upp aðstöðu fyrir ferðamenn á hálendinu og í óbyggðum og greiða götu ferðamanna á landinu. Þá gefur FÍ út bækur og kort og stendur fyrir fjölbreyttum ferðum um landið. Félagið á 40 skála og undir merkjum þess starfa 15 deildir um allt land. Ferðafélagið er í eðli sínu íhaldssamt og rótgróið og heldur fast í gömul og góð gildi. Um leið hefur það þó þróast í takt við tímann. Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri FÍ, segir að félagið hafi í auknum mæli lagt áherslu á lýðheilsu og forvarnarverkefni í starfi sínu.
IMG_7681

Eitt fjall á viku, Eitt fjall á mánuði, Bakskóli FÍ og Biggest Winner
,,Við höfum á undanförnum árum farið af stað með gönguverkefni, t.d. Eitt fjall á viku, Eitt fjall á mánuði, Bakskólann og Biggest Winner, þar sem við erum að bjóða upp á reglulegar ferðir, auk fræðslu um náttúru, sögu og örnefni, en ekki  síður um búnað og öryggismál. Það er ánægjulegt að áhugi landsmanna á útivist, náttúru og gönguferðum er alltaf að aukast og sjáum við þess greinilega merki í okkar starfi. Þá  stofnuðum við Ferðafélag barnanna fyrir nokkrum árum, sem sérhæfir sig í ferðum fyrir börn og fjölskyldur og hefur fengið afar góðar móttökur, og nú erum við með í undirbúningi stofnun Ferðafélags unga fólksins, sem er hugsað fyrir fólk á aldrinum 18 til 25 ára,“ segir Páll. Þá hefur félagið verið í fararbroddi í ferðamennsku og byggt upp skála, gönguleiðir, göngubrýr og staðið fyrir fræðslu. Markmið félagsins í dag eru þau sömu og í upphafi, að greiða götu ferðamanna, byggja upp aðstöðu og að standa fyrir ferðum, útgáfu og fræðslu. Stór þáttur í útgáfustarfi félagsins er útgáfa Árbókar Ferðafélagsins sem hefur komið út óslitið í 87 ár og er einstök ritröð um náttúru landsins.

 
Mikill fjöldi ferðamanna
Páll segir fjölda ferðamanna hafa aukist jafnt og þétt á Íslandi undanfarin ár en aldrei eins og árin 2012 til 2014. Nú sé einfaldlega sprenging í ferðamannafjölda á Íslandi, það eru bæði bókanir hjá ferðaskrifstofum og fólki á eigin vegum. „Ísland er greinilega vinsæll staður að sækja heim og eins hefur ferðum landsmanna innanlands fjölgað,“ segir Páll.  „Við þurfum að hugsa til lengri tíma. Það þurfa allir sem koma að ferðamálum, hvort sem það eru sveitafélög eða hið opinbera, ferðaskrifstofur, ferðafélög eða landeigendur, að koma saman og ræða skynsamlegustu leiðina að settu marki,“ segir Páll. „Við verðum að hugsa um náttúruna og aðstöðuna sem við bjóðum upp á, og þurfum að vera viss um að ráða við þann fjölda ferðamanna sem um landið fer. Þar verða hagsmunir náttúrunnar að vera efstir á blaði.

Fullbókað á Laugaveginum

Langisjors
Langisjór.

Fullbókað er í skála FÍ á Laugaveginum yfir háannatímann. Ferðafélagið hefur í áratugi unnið við að byggja upp aðstöðu víða um land, ekki síst á gönguleiðinni frá Landmannalaugum yfir í Þórsmörk, á svokölluðum Laugavegi. Nú ganga 120 -140 manns þessa leið á hverjum einasta degi frá miðjum júní, allan júlí og fram í miðjan ágúst. Allt að 70% þeirra eru útlendingar að sögn Páls. Margir þeirra bóka sig hjá ferðaskrifstofum en sumir koma á eigin vegum. Umferð þess hóps hefur aukist gríðarlega mikið á undanförnum árum að sögn Páls.
Ferðafélagið á sex skála á Laugaveginum. Árið 2012 var Laugavegurinn tilnefndur sem ein af 10 bestu gönguleiðum í heiminum og haustið 2014 var leiðin tilnefnd sem besta gönguleið í heimi af virtu útivistartímariti og segir Páll það hafi verið mikla viðurkenningu fyrir starf FÍ í leiðinni. „Þeir komu og tóku út gönguleiðina og skálasvæðin og tilnefndu leiðina í kjölfarið á þeirri úttekt.“  Þá komu Landmannalaugar best út allra ferðamannastaða á landinu í könnun Ferðamálastofu er varðar heildarupplifun ferðamannsins og sama má sjá í fleiri rannsóknum. Í dag koma 70.000 manns í Landmannalaugar yfir sumartímann. Félagið hefur í langan tíma óskað eftir fá að laga og þróa aðstöðuna þar og  vonandi stendur það nú  til bóta.  „Aðstaðan eins og hún er í dag er ágætt verkfæri til að stýra umferðinni,“ segir hann. „Það komast bara ekki fleiri í skálapláss á Laugaveginum miðað við aðstöðu og nú er gott tækifæri til að beina fólki annað.“ Páll segir að það séu mjög margar aðrar skálaleiðir sem skemmtilegt sé að ganga og þangað þurfi einfaldlega að beina ferðamönnum. Þeir verði ekki sviknir af þeim leiðum og Páll nefnir sem dæmi Lónsöræfi, Víknaslóðir, Öskjuveginn og Strútsstíg en á öllum þessum gönguleiðum er ágæt skálaaðstaða.

Kongsfell 047Vakinn, umhverfis- og gæðastjórnunarkerfi
FÍ hefur undanfarin ár unnið að því að innleiða Vakann, sem er umhverfis- og gæðastjórnunarkerfi sem Ferðamálastofa býður upp á, og Páll segir að sé alveg frábært framtak. „Þetta er mjög raunhæft kerfi fyrir félög eins og okkur að innleiða,“ segir hann. „Við höfum til dæmis unnið að því að gera áhættumat fyrir allar okkar gönguleiðir. Við ætlum síðan að bjóða öllum í ferðaþjónustunni að nýta þessa vinnu okkar. Skálareksturinn á gönguleiðunum þarf að vera eins sjálfbær og mögulegt er með umhverfisvænum aðferðum, t.d. með sólarsellum sem við notum í nánast öllum skálum.“