Ferðamenn, Reynisfjöru, vestan við Vík

Milli Guatemala og Suður-Kóreu

Ef, fiskveiðilögsagan sem svo sannarlega tilheyrir Íslandi væri talin með í stærð Íslands, væri Ísland allt 860 þúsund kmog 35 stærsta land í heimi, mitt á milli Pakistans og Namibíu að stærð. Fiskveiðilögsagan er semsagt 760 þúsund kmeða rúmlega sjö sinnum stærra en landið sjálft. Í stað þess er Ísland í 108 sæti yfir stærð ríkja, aðeins minna en Guatemala, og örlíðið stærra en Suður-Kórea með sínar 52 milljónir íbúa. Þar af býr helmingurinn í höfuðborginni Seoul, sem er níunda fjölmennasta borg veraldar. Íbúar borgarinnar eru jafn margir og allir íbúar Norður-Kóreu. Rússland er stærsta ríki jarðar, 17.1 milljón kmað stærð og tekur yfir 11% af flatarmáli alls lands á jörðinni. Kanada er í öðru sæti, Kína í því þriðja. Á næsta ári verða 50 ár síðan við færðum út landhelgina í 200 mílur, eftir 4 þorskastríð ( þrjú við Breta, eitt við Þjóðverja) frá 1958 til ársins 1976. Það er við hæfi að birta myndir af brimi sem löðrungar landið, flesta daga ársins.

Fáir staðir á landinu er eins góðir að sjá brim, og austur í Vestur-Skaftafellssýslu. Reynisfjara og Dyrhólaey
Við Hellissand á Snæfellsnesi
Á Skipaskaga, Hafnarfjall í bakgrunni
Reynisdrangar í fjarska
Við Dyrhólaey
Dansað í briminu, norður á Tjörnesi

Ísland 19/03/2024 : A7R IV, RX1R II, A7R II :  2.0/35mm Z, FE 2.8/90mm G, FE 1.8/135mm GM, FE 1.8/55mm Z
Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson