Reykjanes; þetta einstaka hraunprýdda og trélausa nes, á suðvesturhorni Íslands, er einstakt og vanmetið. Þarna eru náttúruperlur og landslag í næsta nágrenni við hátt í áttatíu prósent þjóðarinnar. Ferðamenn og landsmenn, fara annað, vestur eða suður. Suðvesturhornið verður útundan. Það eru ekki nema um 150 km að keyra hringinn í kringum Reykjanesið, og landslagið og birtan, tekur manni alltaf fagnandi. Veðrið… það er önnur saga, þarna á þessu annnesi blæs; en það er til lausn, klæða sig eftir veðri og vindum. Sem eru reyndar óútreiknanlegir., eins og landslagið.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjanes 14/10/2025 – A7C R, RX1R II : FE 1.2/50mm GM, FE 1.8/135mm GM, 2.0/35mm Z



