Portrett Kaldals og Kaldal í tíma og rúmi

Portrett Kaldals og Kaldal í tíma og rúmi
Tvær nýjar ljósmyndasýningar í Myndasal og á Vegg

Jón Kaldal (1896-1981) varð þjóðfrægur ljósmyndari þegar í lifanda lífi. Þar réðu mestu einstakar portrettmyndir hans af listamönnum og framámönnum meðal þjóðarinnar. Slík var staða Kaldals að það varð þeim sem vildu teljast menn með mönnum kappsmál að sitja fyrir á ljósmynd hjá honum.

jk4-74-jon-kaldal-asta120 ár eru nú frá fæðingu Jóns Kaldals og er þess minnst með tveimur sýningum á ljósmyndum hans í Þjóðminjasafni Íslands. Önnur sýningin Portrett Kaldals er helguð sígildum portrettmyndum hans, sem fyrst voru sýndar árið 1966 og aftur árið 1996. Þær myndir hafa tvívegis verið gefnar út á bók. Úrvalið var upphaflega valið af Jóni sjálfum og þetta eru frummyndir unnar af honum með aðstoð konu hans Guðrúnar. Á sýningunni eru fjölmargar myndir sem hafa orðið þjóðþekktar og eru í raun orðnar samofnar ímynd okkar af viðkomandi einstaklingum eins og Ástu Sigurðardóttur skáldkonu, Steini Steinarr ljóðskáldi, Jóhannesi Kjarval listmálara eða Halldóri Laxness skáldi. Þó að myndirnar hafi oft birst á prenti í ýmsum ritum kemur það ekki í stað þess að sjá sjálfar frummyndirnar.jk-hvitarbakki-019-jon-kaldal

jk4-80-johannes-kjarvaljk4-24_finnur-jonsson-listmalariHin sýningin hefur fengið heitið Kaldal í tíma og rúmi. Á henni er sýnt úrval ljósmynda sem teknar eru innan dyra; á heimilum fólks, í heimavistarskólum eða á vinnustöðum á rúmum áratug frá 1926 til 1938. Með sýningunni er reynt að varpa fram annarri hlið á ljósmyndun Kaldals en þeirri sem hefur orðið þekkt. Myndirnar gefa einstaka sýn á híbýlahætti Íslendinga þegar módernisminn var að hefja innreið sína. Myndirnar eru unnar eftir glerplötum úr safni Jóns Kaldals. Frummyndir Jóns og safn frá ljósmyndastofu hans eru varðveitt í Þjóðminjasafni.

Sýningarnar verða opnaðar laugardaginn 24. september og standa fram í janúar.