Verið velkomin á Árbæjarsafn 14. desember!

Jóladagskrá á Árbæjarsafni
Bráðum koma blessuð jólin er yfirskrift jóladagskrár Árbæjarsafns sunnudaginn 14. desember en þá gefst gestum tækifæri að njóta aðventunnar og upplifa jólin eins og þau voru í Reykjavík í þá gömlu góðu daga.
Jólaundirbúningur er í fullum gangi í bænum. Í Árbæ sker fólk út laufabrauð, kembir ull og spinnur garn. Í Hábæ bjóða húsbændur gestum að smakka íslenskt hangikjöt og í Nýlendu tálgar maður skemmtilegar fígúrur úr tré. Kæsta skatan er komin í pottinn í Efstabæ og í Miðhúsum eru prentuð falleg jólakort.
Í hesthúsinu í Garðastræti eru hjúin í óðaönn að steypa kerti úr tólg. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í Krambúðinni er kramarhús, konfekt og ýmis jólavarningur til sölu.
Kaffiilmur berst frá Dillonshúsi en þar er upplagt að setjast niður fá sér tíu dropa og smá bakkelsi með.
Helstu viðburðir:
14:00 Jólaleiðsögn á táknmáli með Sigurlín Margréti
14:00-16:00 Jólasveinar skemmta gestum á víð og dreif um safnsvæðið og taka þátt í söng og dansi
14:00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni
15:00 Sungið og dansað í kringum jólatréð á torgi safnsins
Frítt inn fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Aðrir greiða 2.450 kr.
Vinsamlegast athugið að dagskráin endar kl. 16 en safnið er opið til kl. 17.