Teiknistofan Gláma•Kím hefur á að skipa einstaklingum sem hafa færni, kunnáttu og reynslu til að leysa hverskonar hönnunarverkefni. Stofan sinnir fjölbreyttum verkefnum á starfssviði arkitekta og hefur tekið þátt í fjölmörgum samkeppnum og samanburðartillögum
Af verkefnum sem stofan sinnir mætti nefna:
- Aðalskipulag
- Deiliskipulag
- Mannvirkjahönnun
- Innanhússhönnun
- Húsgagnahönnun
- Verkteikningar
- Verksamningar
- Áætlanagerð og eftirlit
- Eignaskiptayfirlýsingar
Teiknistofan hefur aðstöðu í björtu og rúmgóðu eigin húsnæði að Laugavegi 164 í Reykjavík. Teiknistofan hefur yfir að ráða fullkomnum tölvu- og hugbúnaði auk hefðbundins búnaðar.
Gláma•Kím starfrækir gæðakerfi sem samræmist kröfum í ÍST EN ISO 9001:2000. Vottorðið tekur til ráðgjafarþjónustu á sviðum arkitektúrs, skipulags og umhverfishönnunar.