Halla Nolsøe Poulsen

Sérstakt samband Íslands og Færeyja

Ísland og Færeyjar deila sterkum menningar- og viðskiptahagsmunum

Færeyjar og Ísland hafa átt náið samband í áratugi. „Sambandið nær aftur áratugi,“ sagði Halla Nolsøe Poulsen, sendiherra Færeyja á Íslandi. „Margir Færeyingar fóru til Íslands til að vinna í sjávarútvegi og dvöldu í marga mánuði í senn. Margir urðu ástfangnir og fundu sér íslenskan maka og settust að á Íslandi. Það leiddi að hluta til þess sterka sambands á milli landanna.“ Það eru ótal dæmi um tengsl Færeyja og Íslands. „Í hvert skipti sem kreppa hefur verið á Íslandi tóku Færeyingar sig til og reyndust vera vinir í neyð,“ sagði Halla. „Þegar kreppan skall á árið 2008 gáfu Færeyingar Íslandi sitt fyrsta lán. Þetta var mjög gott merki um bræðralag þjóða.“ Annað dæmi er þegar skriða féll í Súðavík fyrir mörgum árum og eyðilagði nokkur hús. „Færeyingar söfnuðu peningum til að hjálpa við endurbyggingu leikskólans í bænum,“ sagði hún. „Það hafa alltaf verið náin tengsl á milli okkar og vilji til að hjálpa þegar mögulegt er.“

Færeyjar 2014

„Íslendingar eru góðir í að upphefja okkur í stærri heimsmálum,“ sagði Halla. „Þegar við tölum um norrænt samstarf vilja Færeyingar hafa fulla aðild og Ísland hefur alltaf stutt þann metnað. Aðrar þjóðir myndu segja að það þyrfti að ræða við Dani og myndu ekki taka afstöðu, en við höfum alltaf notið stuðnings Íslands.“ Hin árlega Arctic Circle ráðstefna er annað dæmi. „Fyrrum forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur tekið okkur opnum örmum og bent á að Færeyingar ættu að eiga erindi á Arctic Circle, vera með í stefnumótun og umræðu um norðurslóðamál.“

Samband sem nær til viðskipta

Ísland og Færeyjar hafa einnig sterk viðskiptatengsl. „Árið 2006 skrifuðum við undir fríverslunarsamning við Ísland sem kveður á um að ekki megi mismuna löndunum,“ sagði Halla. „Það var ástæðan fyrir því að við opnuðum sendiskrifstofu í Reykjavík og Ísland er fyrsta og eina þjóðin sem hefur sendiherrastöðu í Færeyjum.

Halla Nolsøe Poulsen

Í nýrri skýrslu utanríkisráðuneytisins eru góðar tillögur um hvernig styrkja megi viðskiptatengsl landanna. „Núverandi tölur sýna að Ísland flytur út meira af varningi til Færeyja en Færeyjar til Íslands. Mest er flutt út af fiski, en einnig einhverjar iðnaðarvörur, lambakjöt og kindakjöt,“ sagði hún. „Færeyjar eru næststærsti markaðurinn fyrir íslenskt lambakjöt og kindakjöt á eftir Bretlandi.“ Hér má þó gera margt betur. „Það þarf að vera meira vöru- og þjónustuflæði til Íslands og þar eru miklir möguleikar til úrbóta. Nokkrar augljósar greinar til samstarfs eru ferðaþjónusta og fiskeldi,“ sagði Halla. Þar gefst tækifæri til að efla samstarf í ferðaþjónustunni. „Við sáum í heimsfaraldrinum að áhuginn jókst í nágrannalöndunum, Færeyjar geta verið framlenging á

Halla Nolsøe Poulsen

innanlandsmarkaði,“ sagði hún og bætti við að eftir sumarferðalag innanlands á Íslandi hefðu margir Íslendingar áhuga á að heimsækja Færeyjar sem sína fyrstu utanlandsferð, eftir að faraldurinn hófst. Aukin ferðalög myndu auka enn frekar samband beggja þjóða. -JG

Ljósmyndari Páll Stefánsson