Skógurinn í Fnjóskadal I

Vaglaskógur, í miðjum Fnjóskadal, rétt austan við Eyjafjörð á miðju Norðurlandi er næst stærsti skógur landsins, eftir Hallormstarskógi fyrir austan. Báðir þessir skógar eru þjóðskógar í umsjón Skógræktarinnar, og stofnaðir 1908, þegar þjóðin fékk þá báða í vöggugjöf. Stærð Vaglaskógar eru tæpir fimm ferkílómetrar, þar sem hann er austan við Fnjóská, lengstu dragá landsins, 117 kílómetra löng frá því hún kemur upp í Bleiksmýrardrögum á Sprengisandi, og rennur í sjó fram í Eyjafirði, rétt norðan við Laufás. Bogabrúin yfir Fnjóskadal, yfir í Vaglaskóg, reist 1908, var á þeim tíma lengsta steinbogabrú á Norðurlöndunum, 55 metra löng. Upphaflega var brúin aðeins ætluð fyrir hestvagni og ríðandi menn, en var notuð fyrir almenna bílaumferð til ársins 1968. Árið 1993 færði Vegagerðin brúnna í upprunalegt form, vegna sérstöðu brúarinnar, sem minnisvarði um gamla verkmenningu og stóran áfanga í samgöngusögu Íslands. 

 Fnjóskárbrú í morgunbirtu, byggð 1908
Hoppað í poll í Vaglaskógi
Brúin yfir Fnjóská
Bærin Vaglir, stendur hátt uppi, Fnjóská í forgrunni
Vaglaskógur
Hróarstaðir í Fnjóskadal, frá Vöglum
Kirkjan í Hálsi stendur við Vaglaskóg

Ljósmyndir/Texti : Páll StefánssonSuður-Þingeyjarsýsla 01/08/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 2.5/40mm G, 2.0/35mm Z