Imagine Peace Tour

Söfnin lifna við á Safnanótt!

Hin margrómaða Safnanótt hefst á morgun, föstudaginn 5. febrúar klukkan 19.00 og stendur til miðnættis. Þá opna um fjörtíu söfn á öllu höfuðborgarsvæðinu dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá gestum á öllum aldri að kostnaðarlausu. Safnanótt er í tengslum við Vetrarhátíð sem stendur frá 4.-7. febrúar.
Museum Night 2015 032 Roman GerasymenkoDagskráin telur um 100 viðburði og felur m.a. í sér: Bíóhrylling og lík á Sjóminjasafninu, netgjörning sem er 1 tonn að þyngd í Listasafni ASÍ, lifandi leikhúsdrauga og alvöru kóngastóla í Leikminjasafninu í Iðnó, flakkara, farandverkamenn og flóttafólk í Þjóðskjalasafninu,  silkiþrykkprent í Molanum,  mósaík og margfalda hamingju í Gerðarsafni,  ljóðasmiðju og ljúfa tóna í Bókasafni Garðabæjar, ferðalag ímyndunaraflsins í tröllasögusmiðju í Hönnunarsafninu, Stjörnustríð í Bókasafni Hafnarfjarðar, skrautlegt grímuball í Bókasafni Seltjarnarness, stjörnuskoðun í Ásmundarsafni og möguleika til að skapa eigið listaverk í Hafnarhúsi Listsafns Reykjavíkur.

Sérstakur Safnanæturstrætó gengur frítt á milli safnanna og auðveldar gestum að heimsækja söfnin á Safnanótt. Leiðarkerfi Safnastrætó má finna á vefsíðu hátíðarinnar, vetrarhatid.is undir tenglinum „samgöngur“.

Á Safnanótt fer fram Safnanæturleikur og geta gestir tekið þátt með því að svara þremur laufléttum spurningum og safna þremur stimplum frá mismunandi söfnum sem þeir heimsækja. Heppnir Safnanæturgestir geta unnið árskort á söfn, listaverkabækur og annað skemmtilegt en fimmtíu fjölbreyttir vinningar eru í boði. Hægt er að nálgast Safnanæturleikinn á öllum söfnum sem taka þátt í Safnanótt.
Á Vetrarhátíð lýsum við upp mesta skammdegið með skemmtilegum viðburðum og uppákomum, íbúum og gestum borgarinnar að kostnaðarlausu. Hátíðin er hin glæsilegasta og mun fjöldi listamanna taka þátt í að skapa einstaka stemningu, en ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi. Alls verða á hátíðinni 150 viðburðir af ýmsu tagi, stórir sem smáir, en hún stendur til 7. febrúar.

Dagskrá Safnanætur ásamt annari dagskrá Vetrarhátíðar má finna í heild sinni á www.vetrarhatid.is