Spá í sólstafi og veður

Stykkishólmur, vestur á Snæfellsnesi er sá staður sem lengst hafa verið stundaðar samfelldar veðurathuganir á Íslandi, eða frá árinu 1845, eða í 180 ár. Það var kaupmaðurinn Árni Thorlacius, sem hóf þar veðurathuganir, eftir hvatningu frá Jónasi Hallgrímssyni stórskáldi og vísindamanni. Í dag eru þessar veðurathuganir, sem eru allar aðgengilegar, ómetanlegar fyrir allar rannsóknir á veðurfari á Íslandi. Upphaf veðurathugana á Íslandi er þegar Konunglega Danska Vísindafélagið sendir Niels Horrebow til Íslands, til náttúrurannsókna, og mælir veður á Bessastöðum á Álftanesi, í tvö ár 1749 til 1751. Þessar athuganir vöktu mikla athygli suður í Evrópu, því hér var hlýrra, en menn héldu, sérstaklega á veturna. Umhleypingarnar vöktu líka undrun, enda geta komið hlýindakaflar, jafnvel um dimmasta vetur. Þegar Veðurstofa Íslands gerði upp fyrstu níu mánuði landsins, þá hefur meðalhiti janúar til septembermánaðar í Stykkishólmi aldrei í 180 ára sögu mælinga, mælst eins hár, 6,5 stig, sem er 1°C hærri en meðaltal síðustu þrjátíu ára. Þannig að allt stefnir að árið verði það hlýjasta í sögunni, sem er ansi löng. 

Miðnætursól við Málmey
Stóri Dímon og Eyjafjallajökull
Í Námaskarði
Skýjafar í Dynjandisvogi
Hvammur undir Eyjafjöllum
Sólstafir í Arnarfirði

Búlandstindur

Ljósmyndir/Texti : Páll StefánssonÍsland 08/10/2025 – A7C R, RX1R II, A7R IV : FE 1.2/50mm GM, FE 1.8/135mm GM, FE 2.8/90mm G, 2.0/35mm Z