Sumarið á Íslandi er yndislegur tími. Við bakka Hvítár, var leikið sér í góða veðrinu, en vorið og sumarið hefur leikið við landsmenn, og ferðafólk sem sótt hefur landið heim. Hvítá er þriðja lengsta á landsins, 185 km, ef lengd hennar er lögð saman við Sogið sem rennur í Hvítá rétt norðan við Selfoss. Eftir það heitir áin Ölfusá og er vatnsmesta fljót landsins. Gullfoss er í Hvítá, sá foss sem líklega flestir sjá, en hann er hluti af Gullna hringnum, vinsælasta hring landsins, þar sem Geysir og Þingvellir eru líka hluti af. En látum myndirnar tala, þar sem leikur og fallegur gróður, leikur aðalhlutverkið.








Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson



