Það eru fáir staðir á Íslandi sem eru eins strjálbýlir eins og sunnanverðir Vestfirðir. Það eru líka fáir staðir sem eru eins haustfagrir. Svæðið, Barðaströndin, og þrír syðstu firðir Vestfjarða, Patreksfjörður, Tálknafjörður og Arnarfjörður, er einstaklega fallegt… allan ársins hring. Eftir fimm, sex tíma bílferð úr höfuðborginni, ertu komin í annan heim. Heim sem vert er að skoða, þrátt fyrir að vegakerfið, sé líklega það versta á landinu öllu. Það horfir þó til bóta, því miklar vegabætur eru í gangi, útrýma þeim malarköflum á þjóðvegunum sem eftir eru, austast á Barðaströndinni, og síðasta spölinn á norðanverðri Dynjandisheiðinni. Þegar þessum framkvæmdum verður lokið, verður loksins hægt að ferðast hringinn í kringum Vestfirði á bundnu slitlagi. Sem er stór áfangi fyrir atvinnulífið, og ferðaþjónustu á svæðinu. Icelandic Times / Land & Saga skrapp vestur, áður en vetur konungur tæki sér vetrursetu, þarna fyrir vestan.











Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Vestfirðir 23/10/2025 – A7C R, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z



