Svarfaðardalur

Kristjan Eldjarn HjartarsonSvarfaðardalur er stór og þéttbýll dalur sem liggur milli hárra fjalla inn frá Dalvík við Eyjafjörð að vestan. Hann tilheyrir sveitarfélaginu Dalvíkurbyggð. Um 10 km frá sjó klofnar hann. Eystri dalurinn nefnist Skíðadalur og hann heldur meginstefnu dalsins til suðvesturs en hinn dalurinn heldur Svarfaðardalsnafninu, hann sveigir mjög til vesturs og er oft kallaður Svarfaðardalur fram. Fjölmargir afdalir ganga út frá aðaldölunum. Smájöklar eru víða í þessum dölum. Stærsti jökullinn er Gljúfurárjökull sem er fyrir botni Skíðadals og blasir við úr byggð. Fjöllin eru mikil og brött og margir tindar á bilinu 1000-1400 m á hæð. Hæstu fjöllin eru upp af Skíðadal, hæstur er Dýjafjallshnjúkur 1456 m. Svarfaðardalsá rennur eftir dalnum. Hún á innstu upptök sín á Heljardalsheiði en safnar að sér vatni úr fjölda þveráa og lækja. Stærst þessara áa er Skíðadalsá. Fjölmargar gönguleiðir og fornir fjallvegir liggja úr Svarfaðardal og Skíðadal til næstu byggðarlaga. Þekktasti fjallvegurinn er Heljardalsheiði. Um hana lá hin forn þjóðleið til Hóla í Hjaltadal. Í Svarfaðardal voru fjórir kirkjustaðir, Vellir, Tjörn, Urðir og Upsir.

HSABAK1Barna- og unglingaskóli var á Húsabakka 1956-2004. Þar er nú samkomuhús sveitarinnar en það heitir Rimar. Sundskáli Svarfdæla er upp undir fjallshlíðinni ofan við Húsabakka. Hann var reistur 1929 og er talinn ein elsta yfirbyggða sundlaug landsins. Volgar lindir eru í Laugahlíð ofan við Sundskálann og úr einni þeirra fékk hann vatn. Seinna var borað eftir vatni og vatn leitt þaðan til skálans. Hitaveita er í neðanverðum dalnum en heitt vatn fæst úr borholum á Hamri í Svarfaðardal og á Árskógsströnd. Friðland Svarfdæla nær frá sjó við Dalvík og spannar flatann dalbotninn inn fyrir Húsabakka. Þar er mikið og fjölskrúðugt fuglalíf.

OLYMPUS DIGITAL CAMERA
Svarfaðardalur