Að fanga íslenskt landslag er þrautinni þyngri. Það er svo margrætt, marglaga og öðruvísi. Stærra en myndavélin eða síminn sjá. En fyrir ljósmyndara, já og ferðamann er þetta skemmtileg glíma, að fanga augnablik sem er, og síðan horfið. Mitt besta ráð, eftir að hafa unnið sem myndasmiður í meira en fjóra áratugi, taktu þér tíma, einfaldaðu hlutina, og njóttu þess að verða blautur, kaldur og þreyttur. Því góð mynd, fær þig til gleyma öllu… Hér eru sex augnablik af íslensku landslagi, þar sem liturinn gleymdist í fimm þeirra, því stundum, örsjaldan er landið, landslagið, já stemmningin sterkari svört og hvít.
Ljósmyndir & text : Páll Stefánsson
Ísland 05/11/2023 – A7R IV RX1R II : 1.8/135mm GM, FE 1.4/24mm GM, 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM