Þjónusta í boði í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Keflavíkurflugvöllur gegnir mikilvægu hlutverki í almannaflugi á Íslandi og tengir landið við umheiminn.

Flugstöðin hefur breyst gífurlega frá því að hún opnaði árið 1987. Fjöldi farþega sem fer um stöðina á hverju ári hefur margfaldast og mikil uppbygging hefur átt sér stað. Ýmsa þjónustu má finna á flugvellinum, allt frá fríhöfninni, matsölustöðum, bönkum að fata- og raftækjabúðum.

 

Aðalbygging – komur og brottfarir á 1. hæð    

     

  1. Joe & The Juice – Svalandi safar, hollar samlokur og ilmandi kaffi
  2. 10-11 – Vinalegt starfsfólk tekur vel á móti þér og afgreiðir þig á fljótlegan og þægilegan máta (tímabundið lokað)
  3. Endurgreiðsla á VSK. – Heimilt er að endurgreiða virðistaukaskatt til aðila bísettra erlendis af varningi sem þeir hafa keypt á Íslandi
  4. Bílaleigur
  5. Airport parking
  6. Miðasölur rútufyrirtækja
  7. Tollurinn
  8. Arion banki – Arion banki sinnir gjaldeyrisþjónustu á afgreiðslusvæðum sínum í komu- og brottfararsal. Eins eru 14 hraðbankar í flugstöðinni.

 

Aðalbygging – 2. hæð

  1. Fríhöfnin – Frábært útval af íslenskum og alþjóðlegum snyrtivörum, sælgæti og áfengi
  2. Optical Studio – Gleraugu og linsur frá þekktum framleiðendum á frábæru verði
  3. Elko – Mikið úrval af vinsælustu raftækjunum
  4. Penninn Eymundsson – Úrval bóka og tímarita á íslensku og erlendum tungumálum
  5. Rammagerðin – Íslensk hönnun og handverk
  6. 66° Norður – Útivistarfatnaður fyrir íslenskar aðstæður
  7. Blue lagoon – Íslenskar húðvörur byggðar á einstöku samspili náttúru og vísinda
  8. Pure Food Hall – Íslenskar sælkeravörur (tímabundið lokað)
  9. Airport Fashion – Glæisleg tískuvöruverslun með fjölda þekktra vörumerkja
  10. Joe & The Juice – Svalandi safar, hollar samlokur og ilmandi kaffi
  11. Segafredo – Kaffi, te og annað gómsætt
  12. Loksins bar – Miðbæjarstemning í hjarta flugstöðvarinnar
  13. Mathús – Vinaleg stemning og fjölbreyttur matur
  14. Nord – Íslenskur ferskleiki byggður á skandínavískri hefð (tímabundið lokað)

 

Suðurbygging – 1. hæð

  1. Fríhöfnin – Frábært útval af íslenskum og alþjóðlegum snyrtivörum, sælgæti og áfengi
  2. Rammagerðin – Íslensk hönnun og handverk
  3. 66° Norður – Útivistarfatnaður fyrir íslenskar aðstæður
  4. Penninn Eymundsson– Úrval bóka og tímarita á íslensku og erlendum tungumálum
  5. Mathús – Vinaleg stemning og fjölbreyttur matur
  6. Loksins bar – Miðbæjarstemning í hjarta flugstöðvarinnar
  7. Joe & the Juice – Svalandi safar, hollar samlokur og ilmandi kaffi

 

Suðurbygging – 2. hæð

  1. Hjá Höllu – Eldbakaðar pizzur, ferskur fiskur og gæða samlokur
  2. Fríhöfnin – Frábært útval af íslenskum og alþjóðlegum snyrtivörum, sælgæti og áfengi
  3. Kvikk Café – Gæðakaffi frá Illy, úrvals samlokur, sætabrauð og ávextir

 

Önnur þjónusta

Sérstaðstoð er í boði fyrir farþega með fötlun og/eða skerta hreyfigetu sem ekki komast auðveldlega um, sér að kostnaðarlausu.

Yngstu farþegarnir fá litabók og leiksvæði er í suðurbyggingu flugstöðvarinnar.

Frítt, hraðvirkt og ótakmarkað þráðlaust net er í flugstöðinni.

 

Samgöngur

Fyrsta flokks samgöngur eru í boði til og frá flugvellinum. Hægt er að leigja sér bíl, taka strætó, leigubíl, áætlunarrútur eða aðrar rútur til og frá flugstöðinni.