Þúsundir kvenna

Það er hálf öld síðan fyrsti Kvennafrídagurinn var fyrst haldin á Íslandi, 24 október 1975, en þá lögðu 90% kvenna á Íslandi niður störf sín, til að sýna fram á mikilvægi kvenna á vinnumarkaði. Dagurinn öllu þáttaskilum í kvennabaráttu hér heima, og fimm árum seinna, var frú Vigdís Finnbogadóttir, kosin Forseti lýðveldisins, fyrst kvenna í heiminum. Það hefur margt þokast í rétta átt í réttindabaráttu kvenna á Íslandi, og í dag eru fjögur stærstu embætti landsins í höndum kvenna, Forsætisráðherra, Forseti, Biskup Íslands, og borgarstjórinn í Reykjavík. Réttindabaráttu kvenna er samt ekki lokið, lægri laun á vinnumarkaði, kynbundið ofbeldi, eru stóru málin. Kvennafrídagurinn var nú haldin í áttunda sinn, og hátt í sextíu þúsund konur sóttu baráttufund á Arnarhóli, í miðborg Reykjavíkur í tilefni dagsins. 

Sungið í Sóleyjargötu fyrir baráttufundinn
Gengið að Arnarhóli
Á leið á Arnarhól
Við skrifstofu Forseta Íslands
Á Arnarhóli
Lækjargata eftir fundinn
Hátt í 60 þúsund á Arnarhóli, skrifstofa Forsætisráðherra lengst til hægri
Margt um manninn á Arnarhóli
Horft upp Arnarhól

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík 24/10/2025 – A7C R : FE 1.2/50mm GM, FE 1.8/14mm GM, FE 1.8/20mm G