Til hamingju, Hönnunarverðlaunin ´25

Við Íslendingar gerum marga hluti vel, framsækni í sköpun og hönnun, er stór hluti að vera það sem við erum. Við eigum framúrskarandi skáld, ljósmyndara og listamenn. Ekki má gleyma hönnuðum og arkitektum, og það var verið að heiðra þá, því Hönnunarverðlaun Íslands fyrir 2025 voru veitt nýlega. Fjallahjólið Elja, frá Lauf, var valið vara ársins, Elliðaárstöð er staður ársins á Íslandi, enda einstaklega vel gert og hannað hjá Orkuveitunni, fyrir öll börn á öllum aldri. Fischersund  er verk ársins, ilmstaður í miðri Kvosinni, sem ilmar vel af bæði tónlist og myndlist. Síðan fékk arkitektinn Albína Thordarson heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til byggingarlistar. Náttúruverndarstofnun fékk sérstaka viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. Hönnunarverðlaun Íslands eiga að varpa ljósi á mikilvægi og gæði bæði hönnunar og byggingarlistar á Íslandi. Til hamingju segir Icelandic Times / Land & Saga til verðlaunahafanna. 

Náttúruverndarstofnun
Albína Thordarson
Elliðaárstöð 
Elliðaárstöð 
Fischersund
Fischersund
Lauf

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Reykjavík : 07/11/2025 – A7C R : FE 2.5/40mm G, FE 1.8/14mm GM, FE 1.8/20mm G