Tvær sýningar

Marshallhúsið við Reykjavíkurhöfn var byggt árið 1948, og var þar rekin síldarverksmiðja Faxa í meira en hálfa öld. Húsið var gert upp árið 2017, og er í dag miðstöð menningar og lista í Reykjavík. Icelandic Times / Land & Saga kíkti á tvær ólíkar sýningar í húsinu, Myndleysa/Non-Image sýningu Önnu Maggý í Þulu, og Brúna tímabilið/The Brown Period eftir Ragnar Kjartansson í i8 Grandi. Brúna tímabilið er sýning í tveimur sölum, þar sem Ragnar sýnir ný verk í bland við eldri, þar sem fikt og tilraunamennska ráða ríkjum, á þessari áralöngu sýningu. Vinnustofa Ragnars er spölkorn frá sýningarsalnum, og mun hann skipta út verkum nokkuð oft, og mun sýningin vera síbreytileg allt árið. Brúna tímabilið spannar ár af leik með nýtt og gamalt dót. Á Myndleysa / Non-Image, leikur Anna Maggý sér af ljósmyndum, sem eru ekki ljósmyndir, heldur skapar hún feril með efnum og ljósi og leyfir organísku samspili ráða för, án þess að vita hvert förinni er heitið. Ljósið, efnið og tíminn leiðir listakonuna áfram, í von um óvænta töfra. Amen. 

Brúna tímabilið/The Brown Period
Brúna tímabilið/The Brown Period
Myndleysa/Non-Image
Myndleysa/Non-Image
Myndleysa/Non-Image
Myndleysa/Non-Image
Það er verið að mála, Marshallhúsið, í Örfirisey

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson