Kötlujökull er skriðjökull sem fellur úr austanverðum Mýrdalsjökli, syðsta og fimmta stærsta jökli Íslands, sem þekur um 600 km²
. Katla, eitt öflugasta eldfjall landsins, tæpum 1400 metrum ofar, gaus síðast árið 1918 mjög stóru gosi, er rétt fyrir ofan og gefur skriðjöklinum nafnið. Sporður Kötlujökuls, sem er í um 200 m hæð yfir sjávarmáli, milli Sandfells og Hafurseyjar, steinsnar norðan við Hringveg 1, á Mýrdalssandi, hefur hopað mikið undanfarin ár, en jökulsporðurinn er yfirleitt mjög svartur / dökkur vegna seta og eldgosa, sem flýtir fyrir bráðnun með hækkandi hitastigi. Frá Vík í Mýrdal eru um 40 km að Kötlujökli. Á hverjum degi heimsækja hundruðir, ef ekki þúsundir ferðamanna, jökulinn heim, flestir með ferðaþjónustufyrirtækjum sem bjóða sérsniðnar ferðir á þennan sérstaka, einstaka stað. Ef Katla fer að gjósa; sem hún gæti gert á hverri stundu, hefur maður klukkutíma að koma sér í burtu, áður en allt fer á versta veg. Þann klukkutíma hefur maður, ef maður er ekki komin of langt frá bílastæðinu, til að hendast í burtu, frá hamförum sem breyta öllu. Ekki bara þarna, því eldfjallið Katla, er öflug, áhrifanna gætir um allt land.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Vestur-Skaftafellssýsla 30/08/2025 – A7C R : FE 2.8/100mm GM



