Urriðaholt í Garðabæ

Úr miðbæ Reykjavíkur eru fimmtán kílómetrar í Urriðaholt, nýja íbúabyggð í Garðabæ. En IKEA, Costco, Heiðmörk og Urriðavöllur, golfvöllinn fyrir ofan Urriðaholt eru í göngufæri. Hverfið er hannað til að hámarka lífsgæði fólks, í sátt við náttúruna sem umlykur hverfið. Urriðaholt er fyrsta hverfið á Íslandi til að hljóta vistvottun samkvæmt BREEAM Communities. Hugmyndafræði Urriðaholts hefur verið prófuð og sannreynd í norður Evrópu, sem birtist í hærra fasteignaverði.
Búrfellshraun umlykur Urriðaholt, og myndaði Urriðavatn, þegar það stíflaði dalinn sunnan við hverfið, einstakt vatn, sem fær að njóta sín fyrir íbúa hverfisins. Mjög gott útsýni er af Urriðaholti, yfir Reykjanesið, upp á Snæfellsnes, þegar viðrar, og áfram til austur að Esju, með Vífilsstaði í forgrunni. Icelandic Times / Land & Saga lagði leið sína upp í Urriðaholt, til að sýna lesendum sínum, heilt hverfi verða til.

Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti
Frá Urriðaholti

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Frá Urriðaholti

Garðabær 21/08/2025 – A7C R, A7R V, RX1R II : FE 1.8/20mm G, FE 1.8/135mm GM, 2.0/35mm Z