Það er alltaf gaman að sækja Vestfirði heim. Þessum sérstaka og fámenna kjálka á norðvesturhorninu, með sína rúmlega sjö þúsund íbúa. Veturinn er harður fyrir vestan, en fallegur inn á milli. Hér koma vetrarstemmingar, vetrar fegurð fyrir vestan. Þegar þið farið vestur, verið búin að kynna ykkur vel, bæði veður og færð, því það er langt milli byggðarkjarna. Sá stærsti er Ísafjörður, en um helmingur íbúa Vestfjarða býr í þeim öfluga útgerðarbæ við Skutulsfjörð í Ísafjarðardjúpi.










Ljósmyndir & texti : Páll Stefánsson
Vestfirðir : 15/02/2026 : A7C R, A7R IV, RX1R II – 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM, FE 2.8/100mm GM



