Við Kleifarvatn

Kleifarvatn á Reykjanesi er steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu. Það tekur rétt um hálftíma að keyra úr miðbæ Reykjavíkur í annan og töfrandi heim, við Kleifarvatn. Vatnið er það lang stærsta á Reykjanesi, 10 km² að stærð, og nítjánda stærsta, og þriðja dýpsta stöðuvatn á Íslandi. Það eru engar ár sem renna í eða frá Kleifarvatni, en vatnsborðið sveiflast um allt að fjóra metra, enda er gljúpur jarðvegur í og við vatnið, sem liggur á Krísuvíkur gosbeltinu, einu af sex gosbeltum á Reykjanesskaga. Jarðhitasvæði er við sunnanvert vatnið, og leggja margir leið sína í Seltún, hverasvæðið rétt sunnan við Kleifarvatn. Þar er nú komin gjaldskylt bílastæði á vegum Hafnarfjarðarbæjar.

Mæðgur í göngutúr við vestanvert Kleifarvatn

Við norðurenda Kleifarvatns
Horft í suðaustur yfir Kleifarvatn
Margt um manninn á bílastæðinu við Seltún

Ferðamenn að ganga inn í hverasvæðið við Seltún
Hestar við sunnanvert Kleifarvatn
Skoðað sig um

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Reykjanes 13/08/2025 – A7R IV, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z