Vinningstillögur um Laugaveg og Óðinstorg kynntar

Vinningstillögur um Laugaveg og Óðinstorg kynntar

Niðurstöður í hönnunarsamkeppni um Laugaveg og Óðinstorg voru kynntar í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag (15.janúar 2015). Hugmyndirnar sýna endurgerð tveggja svæða, annars vegar á Laugavegi milli Snorrabrautar og Skólavörðustígs og hins vegar Óðinstorgi. Viðfangsefni samkeppninnar var að hanna svæði fyrir almenning sem endurspeglaði bæði góðan borgarbrag og yrði vettvangur fjölbreytts mannlífs, þar sem aukin áhersla væri lögð á gangandi og hjólandi umferð auk góðs aðgengis fyrir alla.
laugavegur-vid-kjorgard
Höfundar vinningstillögu um endurgerð Laugavegar eru Birgir Teitsson, Hulda Sigmarsdóttir og Sara Axelsdóttir, arkitektar hjá Arkís arkitektum. Með þeim í teymi eru Hermann Ólafsson, landslangsarkitekt hjá Landhönnun, Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, lýsingarhönnuður, Guðjón Örn Sigurðsson, lýsingahönnuður, Kristveig Sigurðardóttir, skipulagsverkfræðingur og Ramon Contini hjá Verkís og Harpa Cilia Ingólfsdóttir, ferlihönnuður og byggingarfræðingur hjá Aðgengi.

Höfundar vinningstillögu um endurgerð Óðinstorgs eru Anna María Bogadóttir, Einar Hlér Einarsson, Hrólfur Karl Cela og Sigríður Sigþórsdóttir, arkitektar hjá Basalt arkitektum.  Í samstarfi við þau voru Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt, Edda Ívarsdóttir, borgarhönnuður og Dario Gustavo Nunes Salazar, lýsingarhönnuður hjá Verkís.

Í dag var einnig opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur sýning á öllum tillögum hönnunarsamkeppninnar og verður hún opin til mánudags.
Verslun, þjónusta og mannlíf á Laugavegi

„Tillagan sýnir góða og sannfærandi útfærslu, þar sem efnisval er gott og hugmyndir vel útfærðar,“ segir í  dómnefndaráliti um vinningstillögu að endurgerð Laugavegar frá Skólavörðustíg að Snorrabraut. „Leiðarlínan er hugmynd sem virðist virka vel og tengir sögu svæðisins inn í hönnunina. Lýsing í götu og rýmum er vel leyst sem og við götugögn. Götutorg eru áhugaverð og sama má segja um lausn á bílastæðum fyrir mismunandi árstíma. Tillögur um götugögn og gróðurbeð virka sannfærandi. Hugmyndir um yfirborð eru með góðu jafnvægi en vinna mætti meira með efnisval. Athuga þarf betur flæði gangandi umferðar og bíla. Tillagan er vel unnin, sýnir ágætt heildaryfirbragð Laugavegar og góðar úrlausnir.“

laugavegur-vid-kjorgardEndurbættur Laugavegur á að laða að fólk og styðja betur við verslun og þjónustu sem veitt eru í götunni, auk þess að efla mannlífið sem hefur verið að aukast á undanförnum árum.

Í samantekt um hönnunarsamkeppnina segir að eftirfarandi markmið skyldi hafa í huga við úrlausnir á Laugavegi:

    Styðja við verslunarrekstur, veitinga- og viðburðahald við Laugaveginn
    Efla þungamiðjur við Laugaveginn, bæði með því að skapa nýjar og efla þær sem til staðar eru en eru kannski óvirkar í dag
    Fjölga uppbrotum við Laugaveginn; m.a. með því að virkja og efla starfsemi sem gætu átt sér stað í þak- og bakgörðum við Laugaveginn
    Að hönnunin myndi umgjörð um lifandi og aðlaðandi staði sem ýti undir aukin og gagnkvæm samskipti fólks. Umhverfisleg gæði verði hámörkuð og skapað verði gott aðgengi fyrir alla.
    Styðja ímynd Laugavegarins sem eins elsta verslunarkjarna Reykjavíkur svo að tíðarandi húsa og götu falli sem best saman. Huga að merkingum og reglum um skilti og auglýsingabúnað með það að leiðarljósi að skapa ákveðna ró í götunni en ekki ,,Vegas“ stemningu á Laugaveginum. Búnaður, götugögn og annað sem hönnuðir kjósa að velja sé í anda Reykjavíkur eða norrænna borga.
laugavegur-naeturlysing-the
 
Fjölbreytt hverfistorg fyrir íbúa og gesti

Um vinningstillögu að endurgerð Óðinstorgs segir í dómnefndaráliti segir að hún tengi garð- og leiksvæði vel við gróðursælt torg og virki vel sem hverfistorg fyrir íbúa og aðra gesti.  Tillagan sýnir góða lausn á fjölbreyttu hverfistorgi. „Góð blanda er af gróðri, efnisval vandað og lýsing vel útfærð. Tillagan vinnur með hæðarmismun torgsins í stöllum sem ganga þvert á torgið og fyrir vikið virkar torgið stærra og fjölbreyttara. Samhengið á torginu mætti vera meira og bæta má aðgengi fyrir hreyfihamlaða. Góð aðstaða virðist vera fyrir hendi fyrir veitinga- og markaðsrekstur á torginu. Um er að ræða fjölnota torg án þess að það verði að tómu rými. Efnisval er margþætt og áhugavert en gróðurútfærslur mætti vinna betur, þar sem trjáflóra mætti vera ríkulegri. Lýsing er góð og ákaflega mild sem gefur torginu vinalegan blæ. Umferðarflæði gatna er ágætlega leyst,“ segir í umsögn dómnefndar.

Helsta viðfangsefni hönnunarsamkeppninnar fyrir Óðinstorg var að stuðla að breyttri notkun á torginu frá því sem nú er, en svæðið er að mestu lagt undir bílastæði. Einnig að horfa á lausnir fyrir Óðinsgötu og Týsgötu sem tengir torgið við Skólavörðustíg á sem bestan hátt. Í innsendum tillögum mátti samkvæmt keppnisskilmmálum horfa framhjá ákvæðum gildandi deiliskipulags hvað varðar torg og göturými.

Í forsendum hönnunarsamkeppninnar var lagt upp með eftirfarandi markmið:

    Að efla gæði umhverfisins á allan hátt og að hönnunin endurspegli góðan borgarbrag
    Að torgið verði vettvangur fjölbreytts mannlífs
    Að torgið verði stolt hverfisins og frábært dvalarsvæði fyrir íbúa
    Að torgið styðji við veitinga- og viðburðahald
    Áhersla er lögð á gott aðgengi fyrir alla.

Dómnefnd og samráð

Í dómnefnd áttu sæti:

    Ólafur Bjarnason, formaður, Reykjavíkurborg
    Hildur Gunnlaugsdóttir, Reykjavíkurborg
    Oddur Hermannsson, fulltrúi FÍLA
    Gunnar Sigurðsson, fulltrúi AÍ
    Tinna Brá Baldvinsdóttir, fulltrúi Miðborgarinnar okkar

Ritari dómnefndar var Björn Ingi Edvardsson, landslagsarkitekt og trúnaðarmaður keppninnar var Ólafur Melsted, landslagsarkitekt.

Undirbúningur og aðdragandi aðhönnunarsamkeppni þessara tveggja svæða hefur verið nokkur. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti í febrúar 2013 að vinna forsögn um endurbætur á Laugavegi, kaflann frá Snorrabraut að Skólavörðustíg þar sem gert er ráð fyrir að endurnýja allt yfirborð, gróður, götugögn og götulýsingu í áföngum. Í kjölfarið var skipaður vinnuhópur um verkefnið og lagði hann fram hönnunarforsögn í umhverfis- og skipulagsráði, sem jafnframt var kynnt fyrir íbúum, fasteignaeigendum og fyrirtækjum við Laugaveg á umræddum kafla. Ábendingar sem fram komu við forsögnina voru hluti af keppnisgögnum.

Endurgerð Óðinstorgs hefur einnig verið í deiglunni um skeið. Samkeppni um útfærslu torgsins hafði áður verið samþykkt haustið 2008 í þáverandi umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur og var þá hluti af hugmyndasamkeppni um Óðinstorg, Baldurstorg og Freyjutorg. Í kjölfarið hófst vinna með biðsvæðaverkefni og ýmsar tilraunainnsetningar á Óðinstorgi og Baldurstorgi sem hefur nú m.a. leitt til hönnunarsamkeppni Óðinstorgs.