Slipptaka varðskipsins Óðins

 

Í morgun 15. október var varðskipið Óðinn tekið í slipp í Reykjavíkurhöfn og tókst það vel, þó tvær tilraunir þyrfti til. Óðinn er frægur fyrir að hafa tekið þátt í öllum þremur þorskastríðunum en í dag þjónar hann sem fljótandi sýning á vegum Sjóminjasafnsins í Reykjavík, nánar tiltekið við Óðinsbryggju í Vesturbugt.

Eins og gefur að skilja er varðveisla og viðhald skips af þessari stærðargráðu ekki einfalt verk, en Óðinn býr svo vel að eiga fjölda hollvina sem koma þar að málum. Þó svo að Óðinn hafi ekki siglt um úfin höf síðustu árin, þarf að sinna reglubundnu viðhaldi og núna er komið að nauðsynlegri slipptöku skipsins í Reykjavíkurhöfn og verður það án efa áhrifarík og ánægjuleg sjón. Þar verður hann botnhreinsaður, málaður og kannað með öxuldrátt, en ráðgert er að framkvæmdin taki um tvær vikur. Að því loknu verður Óðni lagt aftur við bryggju hjá Sjóminjasafninu og verður öllum almenningi aðgengilegur og til sýnis, eins og verið hefur síðustu 10 ár.


Varðskipið Óðinn sem var smíðaður í Álaborg í Danmörku árið 1959 kom til landsins 27. janúar 1960. Árið 2008 afsalaði ríkissjóður Óðni til Hollvinasamtaka Óðins og í kjölfarið tók Sjóminjasafnið formlega við varðveislu skipsins í samvinnu við Hollvinasamtökin. Varðskipið Óðinn fékk þar með nýtt hlutverk sem lifandi hluti af safninu, opið almenningi. Þar er varðveitt og miðlað sögu þorskastríðsáranna við Ísland, sem þjóðin stóð einhuga að, ásamt björgunarsögu Landhelgisgæslu Íslands.

Eftirtaldir aðilar hafa stutt sérstaklega við varðveislu Óðins: Ríkissjóður, Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir, Tryggingamiðstöðin, Olís og THG Arkitektar, og síðast en ekki síst Hollvinasamtök Óðins.