Kvöldganga um strandlengjuna: List í almenningsrými
Fimmtudag 16. ágúst kl. 20.00 við Hörpu tónlistarhús
Sigurður Trausti Traustason og Edda Halldórsdóttir hjá Listasafni Reykjavíkur leiða göngu um útilistaverk við Sæbraut, frá Hörpu á Hlemm.
Gangan hefst við Hörpu við listaverk Ólafar Pálsdóttur, Tónlistarmaðurinn. Ókeypis aðgangur.
Listasafn Reykjavíkur, Borgarbókasafnið og Borgarsögusafn Reykjavíkur bjóða upp á kvöldgöngur með leiðsögn alla fimmtudaga kl. 20.00 í sumar til 30. ágúst.