Árbæjarsafn

Verslunarmannahelgin 5.-6. ágúst 2018 kl. 13:00-16:00

Komdu að leika! Útleikir í  Árbæjarsafni um verslunarmannahelgina

Um verslunarmannahelgina verður venju samkvæmt blásið til fjölbreyttrar leikjadagskrár á Árbæjarsafni. Dagskráin er ætluð krökkum, en hún er að sjálfsögðu opin öllum þeim sem ætla að njóta þess sem Reykjavík hefur upp á að bjóða, þessa mestu ferðahelgi ársins.

Frá kl. 13:00, bæði sunnudaginn 5. ágúst og mánudaginn 6. ágúst, geta gestir keppt í pokahlaupi, skjaldborgarleik og reiptogi, svo nokkuð sé nefnt.

Á safninu er fjölbreytt úrval af útileikföngum sem krökkum býðst að nota að vild, svo sem húla-hringir, snú-snú, kubb og stultur og síðast en ekki síst flottir kassabílar. Þá verður hægt að grípa í badmintonspaða og á gamaldags róluvelli eru rólur, vegasalt og sandkassi.

 

Frá kl. 13:00, bæði sunnudaginn 5. ágúst og mánudaginn 6. ágúst, geta gestir keppt í pokahlaupi, skjaldborgarleik og reiptogi, svo nokkuð sé nefnt.

Við mælum með að yngsta kynslóðin heimsæki sýninguna „Komdu að leika“ í safnhúsi sem kallast Landakot en þar er mikill fjöldi leikfanga frá ýmsum tímum sem krökkum er frjálst að leika sér með.

Á sunnudeginum 6. ágúst mun sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjóna fyrir altari í litlu kirkjunni á Árbæjarsafni kl. 11. Kór Árbæjarkirkju syngur og  Krisztina Kalló Szklenár leikur undir á orgel.

Í Árbæ má kynnast sveitalífi fyrri alda og í haga er að finna hesta, folald, kindur og lömb.

Í Dillonshúsi verða að sjálfsögðu ljúffengar veitingar í boði alla helgina.

Árbæjarsafn er opið daglega í sumar frá kl. 10:00 – 17:00.

Árbæjarsafn er hluti af Borgarsögusafni – eitt safn á fimm frábærum stöðum.