Vegferð

Lengd vegakerfisins á Íslandi er rétt um 26.000 km langt. Á forræði Vegagerðarinnar eru þjóðvegir landsins sem eru 12.900 km, þar af eru 5.900 km með bundnu slitlagi og sveitafélagsvegir, sem eru vegir innan þéttbýlis sem eru 13.100 km og og eru 2.500 km bundnir. Það eru 1.200 brýr í vegakerfinu, og helmingur þeirra eru einbreiðar, þar af 29 á Hringvegi 1. Stefnt er að því að útrýma þeim á næstu fimmtán árum. Það eru 14 jarðgöng í vegakerfinu og samanlögð lengd þeirra eru 64 km. Í 

Samgönguáætlun fyrir árin 2024-2028 eru áætlaðar fjárveitingar til vegakerfisins sem nema 44,4 milljörðum til uppbyggingar og viðhalds., sem margir telja allt of lítið. Þjóðvegur 1, eða Hringvegurinn er 1321 km langur, og tengir saman flest öll héruð landsins, og liggur um alla landshluta nema Vestfirði, norðausturhornið og hálendið. Hringvegurinn var kláraður árið 1974 þegar Skeiðará í Öræfasveit var brúuð. Lokið var að setja bundið slitlag á Hringveginn árið 2019. Vegagerðin mælir umferð og umferðarþunga á fjölmörgum stöðum á Hringveginum, en meðalhraði á Þjóðvegi 1, var 93,3 km/kls á sumrin, sem er örlítið yfir hámarkshraða, sem er 90 km/kls. Þrátt fyrir aukna umferð, og hraða, og erfiðar aðstæður á vetrum, eru banaslys í umferðinni hér með því lægsta sem er í heiminum. 

Á Kili, við Kerlingafjöll
Í Skaftártungum, austur í Vestur-Skaftafellssýslu
Skinnastaður í Öxarfirði, Norður-Þingeyjarsýslu

Jeep frá árinu 1946

Horft af Hellisheiði eystri yfir Héraðsflóa
Lögreglan sinnir öflugu umferðaeftirliti allan ársins hring
Brúin yfir Mjóafjörð, Ísafjarðardjúpi, vestur á fjörðum

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Ísland 06/08/2025 – A7RIV, RX1R II : FE 2.8/100mm GM, FE 1.2/50mm GM, 2.0/35mm Z, FE 1.8/135mm GM