Það er svo ánægjulegt þegar eitthvað nýtt og spenndi bætist við listaflóruna á Íslandi. Nýtt gallerí var að opna á Mýrargötu 18, við Reykjavíkurhöfn, í kjallara hönnunarverslunarinnar La Boutique Design. Á opnunarsýnungunni sýna 41 listamenn, 111 verk, sem spanna alla flóruna, virkilega skemmtileg yfirlitssýning á því sem best er gert í núinu hér heima. Listamennirnir eru í stafrófsröð, Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir, Anna Ólöf Jansdóttir, Ásgeir Skúlason, Auður Ómarsdóttir, Ásta Guðrún Óskarsdóttir, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Baldur Helgason, Björgvin Sigurðarson, Claire Paugam, Dagur Benedikt Reynisson, Einar Viðar G. Thoroddsen, Grace Jane Claiborn-Barbörudóttir, Halldór Sturluson, Hallgrímur Helgason, Helga Sigríður Valdemarsdóttir, Helgi Vignir Bragason, Hulda Vilhjálmsdóttir, Ingibjörg Dalberg, Julie Sjöfn Gasiglia, Kata Unnar Jóhanness, Kristinn Már Pálmason, Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir, Lilý Erla Adamsdóttir, Markús Bjarnason, Melkorka Katrín Korkimon, Martina Priehodová, Páll Ivan frá Eiðum, Patty Spyrakos, Ragga Weisshappel, Salome Hollanders, Salvör Sólnes, Sigga Björg Sigurðardóttir, Sindri Dýrason, Snorri Ásmundsson, Sunna Dögg Ásgeirsdóttir, Steinar Fjeldsted, Tinna Magnúsdóttir, Unnar Ari Baldvinsson, Yael BC, Þórarinn Ingi Jónsson og Þorvaldur Jónsson. Það verður virkilega spennandi að fylgjast með næstu sýningu, sýningum, en þessi opnunarsýning stendur yfir fram í miðjan janúar 2026. Já það margt og gott að gerast í íslenskri myndlist akkúrat núna, það sést vel á þessum skemmtilega þverskurði, vel gert.







Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson
Reykjavík : 09/11/2025 – A7C R : FE 2.5/40mm G, FE 1.8/20mm G, FE 1.2/50mm GM



