Leikhús, hreyfing og leikir verða í boði fyrir alla krakka sem koma á Árbæjarsafn sunnudaginn 26. júlí.
Bríet blómálfur og Skringill skógarálfur bjóða alla hjartanlega velkomna á jógaleiksýningu kl. 14.00. Sýningin fjallar um Skringil skógálf sem lendir í vandræðum en Birta blómálfur kann mörg ráð og kemur til bjargar. Allt gengur betur ef krakkarnir koma og hjálpa til! Allir geta tekið þátt en einnig er hægt að horfa bara á og hafa gaman af.“
Leiksýningin fer fram á torginu en þar mun starfsfólk safnsins einnig bjóða upp á skemmtilega leiki frá 13.00-14.00 og aftur frá 15.00-16.00.
Allir velkomnir!
Árbæjarsafn opið í allt sumar frá 10-17.
Kistuhyl
110 Reykjavík
Sími: (+354) 411 6300
[email protected]