Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ráð fyrir risa-ferðaþjónustuverkefni í landi Efri-Reykja í endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins en þróunarfélagið Reykir ehf. ætlar að reisa þar 100 herbergja hótel ásamt tvö þúsund fermetra baðlóni á svæðinu.
Um er að ræða tvö þúsund fermetra baðlón/laug í landi Efri-Reykja, rétt við Brúará, Reykjaveg og Laugarvatnsveg, ásamt þjónustubyggingu og 100 herbergja hóteli, aðstöðuhúsi fyrir starfsmenn og möguleika á stækkun hótelsins. Þjónustubyggingin yrði 3.500-4.000 fermetrar, hótelið 5.500-6.000 fermetrar og stækkunarmöguleikar á 3.000-4.000 fermetrum. Aðstöðuhús fyrir starfsmenn yrði 400-500 fermetrar að flatarmáli, ef af þeim framkvæmdum verður.
Verkís hefur aðstoðað þróunarfélagið Reyki ehf., við undirbúning og útfærslu verkefnisins en ráðgjöfin snýr bæði að tæknilegum úrlausnum og greiningu kostnaðar.
Arkitekt er Orri Árnason hjá Zeppelin Arkitektum.
Hér má sjá myndir af verkefninu: