Dagný Heiðdal listfræðingur.
Frá myndbandi til vídeólistar: Vangaveltur um orðanotkun
Fimmtudag 9. mars kl. 20 í Hafnarhúsi
Umfjöllun um nýja tækni krefst nýrra orða og er myndlistin þar engin undantekning. Bæði nýyrði og tökuorð einkenna íslenska myndlistarumræðuna og sýnist sitt hverjum. Eigum við að smíða ný orð úr innlendu efni eða nota tökuorð sem falla vel að alþjóðlegri umræðu? Í erindi sínu mun Dagný Heiðdal velta fyrir sér hugtökum og orðanotkun í umfjöllun um nýja miðla hér á landi á undanförnum áratugum. Viðburðurinn er haldinn í tengslum við sýninguna Hrina: Vídeóverk úr safneign í Hafnarhúsi.
Dagný Heiðdal lauk MA prófi í listfræði frá Háskólanum í Lundi árið 2002 og hefur síðan þá starfað sem deildarstjóri listaverkadeildar Listasafns Íslands. Hún hefur sérhæft sig í skráningu listaverka og hefur frá 2013 setið í framkvæmdastjórn og fulltrúaráði Rekstrarfélags Sarps, sem er menningarsögulegt gagnasafn fyrir íslensk söfn. Dagný vinnur að Orðasafni um myndlist sem er skráð í Orðabanka Íslenskrar málstöðvar og er samvinnuverkefni helstu listasafna landsins og Listaháskóla Íslands.