Eitt eldgos eftir?

Þann 19. mars 2021, birti Morgunblaðið viðtal við jarðfræðing, sem hafði unnið lengi við að kortleggja jarðfræði Reykjanesskagans, um kvikusöfnun og jarðskjálfta við Fagradalsfjall, undanfarna daga. ,,Ég á satt að segja ekki von á neinni kviku upp á yfirborðið á þessu svæði. Eldvirkni þarna hefur verið mjög lítil, mjög lengi. Það er ekkert sérstaklega líklegt að þarna verði gos.” Það byrjaði að gjósa sama dag, og viðtalið var tekið. Síðan hefur gosið þarna tólf sinnum, í tveimur eldstöðvarkerfum, í Fagradalsfjalli og rétt vestar við Svartsengi, eftir 800 ára hlé. Er þessu lokið? Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir í viðtali við Vísi, að þessu sé að ljúka. ,,Það er að sjá að við séum að nálgast seinni hlutann í þessum umbrotum sem hafa verið og það séu líklega ekki mörg eldgos eftir, kannski eitt en við vitum þetta ekki. Nú sé komið álíka magn og mældist í fyrsta fasa eldsumbrota fyrir tólf hundruð árum á Reykjanesskaga. Þá er líklegt að þegar gosinu lýkur á Sundhnúksgígaröðinni þá komi nokkuð langt tímabil, sem getur verið 100 ár þar sem lítið eða ekkert gerist.“ Er þessu semsagt að ljúka; eða byrja. Með eldgosahrinu sem mun vara næstu árhundruð. 

Eldgos á Reykjanesi
Eldgos á Reykjanesi
Eldgos á Reykjanesi
Eldgos á Reykjanesi
Eldgos á Reykjanesi

Ljósmyndir/Texti : Páll Stefánsson

Reykjanes 05/10/2025 – A7C R, RX1R II A7R IV : FE 2.8/100mm GM, 2.0/35mm Z, FE 1.2/50mm GM

Myndatextar : 

Eldgos á Reykjanesi