Fimmtíu ár liðin frá mannskaðaveðri í Ísafjarðardjúpi

Fimmtíu ár eru nú liðin frá sjóslysunum miklu í Ísafjarðardjúpi í byrjun febrúar 1968. Þá fórust 26 sjómenn af tveimur breskum togurum og einum íslenskum vélbáti. Af því tilefni verður haldin athöfn um borð í varðskipinu Óðni til minningar um þá sem týndu lífi þennan örlagaríka dag og jafnframt til að minnast þess björgunarafreks sem áhöfnin á Óðni vann. Athöfnin hefst kl. 16:00 mánudaginn, 5. febrúar 2018

16. október 1968, um borð í varðskipinu Óðni í Reykjavíkurhöfn. Landhelgisgæsla Íslands og skipverjar á Óðni fá afhenta orður úr hendi breska sendiherrans á Íslandi fyrir þátt þeirra í björgun áhafnarinnar á breska togaranum Notts County sem strandaði í Ísafjarðardjúpi 5. febrúar 1968. Pálmi Hlöðversson stýrimaður á Óðni tekur við gullorðu, The Sea Gallantry Meda,l úr hendi A. S. Halford-MacLeod sendiherra Breta. Á milli þeirra er Sigurður Árnason skipherra.Höfundur: Bragi Guðmundsson © Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Þeir sem fórust voru sex manna áhöfn Heiðrúnar II frá Bolungarvík og 19 manna áhöfn breska togarans Ross Cleveland, fyrir utan einn mann sem bjargaðist við illan leik. Togarinn Notts County strandaði sama dag á Snæfjallaströnd, en áhöfn Óðins vann hetjudáð þegar hún bjargaði skipverjum þess en einn þeirra var þegar látinn er Óðinn komst á slysstað. Vegna aðkomu áhafnar Óðins, með Sigurð Árnason skipherra í fararbroddi, var 18 mannslífum bjargað þennan dag.

16. október 1968 um borð í varðskipinu Óðni í Reykjavíkurhöfn. Landhelgisgæsla Íslands og skipverjar á Óðni, eiginkonur þeirra og fleiri stilla sér upp á þilfari varðskipsins eftir að hafa þegið orðu úr hendi breska sendiherrans á Íslandi fyrir þátt þeirra í björgun áhafnarinnar á breska togaranum Notts County sem strandaði í Ísafjarðardjúpi 5. febrúar 1968. Talið frá vinstri: hjónin Pálmi Hlöðversson stýrimaður og Guðmunda Helgadóttir, hjónin Björg Jónsdóttir og Sigurjón Hannesson stýrimaður, A. S. Halford-MacLeod sendiherra Breta, Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra, hjónin Edda Jónsdóttir og Sigurður Árnason skipherra á Óðni og Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgisgæslu Íslands. Höfundur: Ari Kárason (1919-1997) © Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Minningarathöfnin fer fram í þyrluskýli Óðins þar sem sr. Hjálmar Jónsson mun fara með minningarorð en Michael Nevin, sendiherra Breta á Íslandi, mun jafnframt ávarpa samkomuna. Í kjölfarið verður boðið upp á kaffiveitingar í messa skipsins. Þar mun Gylfi Geirsson, formaður Öldungaráðs Landhelgisgæslunnar og fyrrverandi starfsmaður hennar, fjalla um björgunarafrekið sem áhöfn Óðins vann.

Mynd frá árinu 1964 af vélbátnum Páll Pálsson GK 360 frá Sandgerði. Síðar Heiðrún II ÍS 12. Báturinn fórst í febrúar 1968 með 6 manna áhöfn. Akrafjall í baksýn. Höfundur: Ólafur Árnason (1919-1987) ©Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Varðskipið Óðinn liggur við festar við Sjóminjasafnið í Reykjavík við Grandagarð 8 og hefur tilheyrt safninu síðan 2008.