Fjöllistamaðurinn Mushimaru Fujieda ásamt Fufanu

Fjöllistamaðurinn Mushimaru Fujieda ásamt Fufanu á KEX Hostel

Einstakur viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara

Japanski fjöllistamaðurinn Mushimaru Fujieda fremur gjörning ásamt rokksveitinni Fufanu á KEX á morgun, miðvikudaginn 13. júlí.  Gjörningurinn hefst klukkan 20:00 í Gym & Tonic.

13 Fufanu Mushimaru icelandictimes

Mushimaru Fujieda (f. 1952, Japan) er dansari, leikstjóri og danshöfundur og er þekktur Butoh dansari. Hann hóf feril sinn með leikhópnum Ishinha  árið 1972. Árið 1989 starfaði hann með Beat-skáldinu Allen Ginsberg í New York og í kjölfarið af því tækifæri hóf hann að kalla sig Náttúrulegt, líkamlegt skáld  (e. Natural Physical Poet). List hans þróaðist í kringum sóló-dans þar sem hann tjáir tilfinningaþrungin augnablik í lífinu, á táknrænan hátt, líkt og hluta ljóðs, og skapaði spennu og ljóðrænu. Hann fæst einnig við grímu-dans fyrir Himalaya trúarathafnir; samvinnu í leiksýningum með tónlistarmönnum og skáldum. Hann hefur performerað og starfað með listamönnum allra listgreina og hefur haldið námskeið í yfir 20 löndum. Ásamt þremur börnum sínum stýrir Fujieda danshópunum The Physical Poets og Arakan Family. Hann lifir sjálfbæru lífi á Yakushima eyju, þar sem er forn skógur, og ferðast þaðan vegna listar sinnar, um allan heim.

Mushimaru Fujieda hefur starfað sem leikari, rithöfundur, leikstjóri, framleiðandi, handritshöfundur og dansari, á alþjóðavettvangi, síðan 1972. Verk hans hafa birst í sjónvarpsþáttum og í útvarpi. Hann hefur ferðast víða með list sína og komið fram í listastofnunum, list-tvíæringum og listahátíðum um heim allan, svo sem í Bandaríkjunum, Japan, Suður-Kóreu, Kína, Taívan, Indlandi, Mexíkó, Grikklandi, Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi, Englandi, Eistlandi og á Norðurlöndunum.

Fufanu er rokkhljómsveit úr Reykjavík sem er leidd af þeim Kaktusi og Guðlaugi Halldóri Einarssyni.  Few More Days To Go er fyrsta skífa Fufanu í fullri lengd og kom hún út á vegum Smekkleysu SM hér á landi, útgáfufélagið One Little Indian gaf skífuna út á erlendri grundu.  Breiðskífan hlaut glimrandi viðtökur meðal tónlistarskríbenta og komst hún á m.a. lista yfir bestu plötur ársins hjá The Line of Best Fit, NME og Guardian.  Bandaríska útvarpsstöðin KEXP hefur einnig miklar mætur af sveitinni og hefur boðið henni tvívegis í upptökur hjá sér.