Vonin eftir Ragnar Kjartansson

Grindavík & Vonin

Auðvitað er það sterkt, eins og fólkið í Grindavík, að það fyrsta sem ég festi augu á, komandi inn í tóman bæinn var Vonin, listaverk eftir myndhöggvarann Ragnar Kjartansson. Höggmynd afhjúpuð 1980, á besta stað í bænum. En nú er bærinn tómur. Undir Grindavík og allt um kring frá Bláa lóninu, Svartsengi rétt norðan við bæin og frá Þorbirni og í sjó fram, er eitthvað að gerast. Icelandic Times / Land & Saga fór til að gefa lesendum nasasjón af þessum hamförum, sem engin veit hvar eða hvernig enda. En þar er Vonin, verk sem var sett upp fyrir meira en hálfri öld. Grindavík mun lifa þessa hamfarir af, auðvitað.

Hús sprungu í hamförunum um daginn
Elliheimilið gliðnað í sundur
Allt lokað, samt ekki, örfá fyrirtæki hafa hafið starfsemi, hér verið að sækja kassa til að flytja ferskan fisk með flugi.
Byrjun á nýju hverfi í Grindavík
Grindavík, Vonin og fjallið Þorbjörn í bakgrunni
Allt lokað, engin á ferð, enda er ekki búist við að íbúar flytji til baka á þessu ári
Stysta leiðin, milli Reykjavíkur og Grindavíkur liggur í dag um Kleifarvatn, vegurinn í dag, háll og sleipur.
Götur og girðingar gengu í gegnum gliðnun jarðar
Gatan við kirkjuna í Grindavík, gliðnaði í sundur
Falleg í dag, þrátt fyrir að allt sé undir

Ljósmyndir & text : Páll Stefánsson
Grindavík 05/12/2023 –  A7C, RX1R II, A7R IV : FE 1.8/20mm G, FE 1.4/85mm GM, 2.0/35mm Z