Haustsýning Hafnarborgar 2017

Haustsýning Hafnarborgar 2017
Kallað eftir tillögum

Eins og undanfarin ár gefst sýningarstjórum tækifæri til að senda inn tillögur að sýningu í Hafnarborg haustið 2017. Sýningin Tilraun – leir og fleira sem nú stendur yfir í safninu var valin úr athyglisverðum tillögum sem sendar voru inn á síðasta ári. Markmiðið með því að óska eftir innsendum tillögum er að fá tækifæri til að velja til samstarfs sýningarstjóra sem leggur fram áhugaverða tillögu að sýningu en jafnframt að kalla til leiks nýtt fólk. Þannig er sérstaklega hugað að því að veita tækifæri sýningarstjórum með stuttan feril að baki. Það hefur sýnt sig að fyllsta ástæða er til að halda úti slíku verkefni, en út frá því hafa orðið til fjölbreyttar og áhugaverðar sýningar sem vakið hafa athygli og verið vel sóttar.haust
Óskað er eftir hugmyndum að samsýningum þar sem viðfangsefni, vinnuaðferð eða aðrar hugmyndir tengja verk listamanna en einnig koma til greina sýningar sem fela í sér greiningu eða sýn á verk ákveðins listamanns. Jafnt koma til greina sýningar á verkum samtímalistamanna og sýningar sem fela í sér sögulega greiningu.

Umsóknarferlið er tvískipt og eru þeir sem áhuga hafa á að takast á við þetta verkefni hvattir til að kynna sér verkefnið frekar hér.

Árið 2011 hóf haustsýningaröðin göngu sína með sýningunni Í bili sem unnin var af Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur mannfræðingi, 2012 var sett upp sýningin SKIA í sýningarstjórn Guðna Tómassonar listsagnfræðings og Anna María Bogadóttir menningarfræðingur og arkitekt vann sýninguna Vísar – húsin í húsinu árið 2013. Á árinu 2014 var hugmynd Helgu Þórsdóttur, menningarfræðings og myndlistarmanns, að sýningunni Rás valin úr áhugaverðum tillögum. Haustið 2015 voru það listfræðingarnir Aðalheiður Valgeirsdóttir og Aldís Arnardóttir með sýninguna Heimurinn án okkar og í ár var tillaga hönnunartvíeykisins TOS sem varð fyrir valinu en TOS er skipað þeim Hildi Steinþórsdóttur, arkitekt, og Rúnu Thors, vöruhönnuði. Sýningin ber nafnið Tilraun – leir og fleira og er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönnunar.

Eins og fyrr þá komu tillögurnar frá fólki úr ýmsum geirum, listamönnum og fræðimönnum af ólíkum sviðum en einnig frá fólki með sérmenntun á sviði sýningarstjórnar. Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir þannig að safnið verði vettvangur þar sem myndlist fær notið sín, mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Sýningarnar og málþing sem skipulögð hafa verið samhliða þeim hafa skapað markverðan vettvang umræðna og þróunar í Hafnarborg.

Frestur til að skila inn tillögum rennur út sunnudaginn 30. október 2016.

Tillögur sendist á netfangið: [email protected]
Merkið póstinn Haust2017.
Nánari upplýsingar í síma Hafnarborgar 585 5790 og á heimasíðu safnsins www.hafnarborg.is

Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð
Hafnarfjarðar

Strandgata 34
220 Hafnarfjörður
Ísland Opið alla daga kl. 12–17
Lokað á þriðjudögum.

www.hafnarborg.is
[email protected]
585 5790

© Hafnarborg 2016