Hljóðön – Nýjir strengir

13.10.14 hafnarborg
Sunnudagur 19. október kl. 20

Finnski sellóleikarinn Markus Hohti kemur fram á fyrstu tónleikum vetrarins í tónleikaröðinni Hljóðön í Hafnarborg sunnudaginn 19. október klukkan 20. Tónleikarnir bera yfirskriftina Nýjir strengir en á þeim leikur Hohti á ný íslensk strengjahljóðfæri sem styðjast á einn eða annan hátt við notkun strengja í fjölbreyttri mynd. Má þar hlýða á nýjustu útgáfu hljóðfærisins dórófón (#8) eftir Halldór Úlfarsson, myndlistarmann og nýtt selló Hans Jóhannssonar, fiðlusmiðs. Á efnisskrá tónleikanna eru fjölbreytt verk eftir innlend og erlend samtímatónskáld, þeirra á meðal samlanda Markusar, þá Kaiju Saariaho og Sami Klemola, auk verka eftir Simon-Steen Andersen. Á tónleikunum verður jafnframt frumflutt nýtt verk eftir Guðmund Stein Gunnarsson fyrir dórófón.

Markus Hohti  kemur reglulega fram á tónleikum víðsvegar um Evrópu og leikur allt frá klassískri kammertónlist yfir í  tónlist samtímans. Hann hefur frumflutt yfir hundrað einleiks- og kammerverk og unnið náið með mörgum þekktum tónskáldum.

Dórófónar (e. Halldorophones) eru rafhljómræn strengjahljóðfæri sem Halldór Úlfarsson, myndlistarmaður, hefur þróað undanfarinn áratug. Hljóðfærið byggir á endurómun hljóðs (e. audio feedback) og hefur Halldór útfært hljóðfærið í nokkrum mismunandi myndum. Dórófónar hafa komið víða við og verið sýndir á hönnunar- og listasýningum víðs vegar um Evrópu auk þess sem þeir hafa verið notaðir í tónsmíðum Stephen O´Malley í hljómsveitinni Sunn 0))) og af hljómsveitinni The Knife og í verkum nokkurra yngir tónskálda.

Hljóðön 2014 – 2015
Í vetur verða fernir tónleikar í tónleikaröð Hafnarborgar Hlóðön sem vakið hefur athygli fyrir að kynna tónlist 20. og 21. aldar þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir. Listrænn stjórnandi Hljóðanar er Þráinn Hjálmarsson og í vetur koma fram 10 framúrskarandi flytjendur. Nafn tónleikaraðarinnar skírskotar til smæstu merkingargreinandi hljóðeiningar í hljóðkerfi tungumála, grunneiningar sem púsla má ólíkt saman svo úr verði tilraun til merkingar. Hafnarborg efnir hér til tónleikaraðar þar sem ætlunin er að kynna ólík verk samtímatónskálda úr fremstu röð. Í forgrunni verða verk sem fá best notið sín við þær aðstæður og miklu nánd sem býðst í sal Hafnarborgar og telja má sérstakan í flóru tónlistarsala á höfuðborgarsvæðinu. Tónleikaröðin er styrkt af tónlistarsjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins og tónlistarsjóði Ernst von Siemens.

Aðgöngumiðar á tónleikana eru seldir í afgreiðslu Hafnarborgar, á opnunartíma safnsins og klukkustund fyrir tónleika. Hægt er að panta miða í s. 585-5790. Almennt miðaverð er kr. 2500, fyrir eldri borgara og námsmenn kr. 1500.

Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð
Hafnarfjarðar

Strandgata 34
220 Hafnarfjörður
Ísland    Opið alla daga kl. 12–17
og fimmtudaga til kl. 21.
Lokað á þriðjudögum.

www.hafnarborg.is
[email protected]
585 5790