Hrólfur Sæmundsson

Hrólfur Sæmundsson

Dagskrá hádegistónleika Hafnarborgar hefst á ný þriðjudaginn 7. febrúar kl. 12. Þá kemur fram Hrólfur Sæmundsson barítón ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara. Á tónleikunum verða fluttar fjórar aríur úr óperunum Machbeth, La Traviata og Don Carlo eftir G. Verdi.

Hrólfur Sæmundsson barítón lauk meistaragráðu í einsöng við New England Conservatory í Boston árið 2002. Áður hafði hann lokið burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík undir handleiðslu Guðmundar Jónssonar og Ólafs Vignis Albertssonar. Hrólfur hefur sungið í óperuuppfærslum og tónleikum víða um Evrópu og í Bandaríkjunum en frá árinu 2009 hefur hann aðallega starfað í Þýskalandi og er nú fastráðinn við óperuhúsið í Aachen.

Antonía Hevesi píanóleikari hefur frá upphafi verið listrænn stjórnandi hádegistónleika í Hafnarborg og valið með sér marga af fremstu söngvurum landsins.

Hádegistónleikar Hafnarborgar eru haldnir mánaðarlega. Þeir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund, þeir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Húsið er opnað kl. 11.30.

Nánari upplýsingar hjá: Áslaugu Friðjónsdóttur, upplýsingafulltrúa Hafnarborgar, s. 585 5791.