Jólagos kvennakórsins kötlu á KEX 20. Desember
Einn vinsælasti kvennakór reykjavíkur færir jólaandann
Kvennakórinn Katla kemur jólaskapinu í hæstu hæðir með Jólagosi sínu á Sæmundi í sparifötunum 20. desember klukkan 21:00. Sæmundur í sparifötunum er kominn í jólafötin og er jólaseðillinn í hávegum hafður. Jólagos Kvennakórsins Kötlu er hluti af KEXMAS dagskrá sem er í gangi allan desember mánuð.
Katla er kvennakór sem stofnaður var í Reykjavík árið 2012 og telja meðlimir kórsins 60 konur í heildina. Kórinn er þekktur fyrir útsetningar sínar á þjóðlögum sem og popplögum.
Tendraðu jólaljósið sem er innra með þér á þessum einstöku tónleikum sem hefjast klukkan 21:00.
Það er frítt inn og tónleikarnir opnir öllum eins lengi og húsrúm leyfir.
Borðapantanir fara fram í gegnum síma 510 0066.