Julien Baker á KEX

Bandaríska tónlistarkonan Julien Baker á KEX Hostel 20. júní

Indriði úr MUCK hitar upp

Hin unga og mjög svo upprennandi tónlistarkona Julien Baker heldur sína fyrstu tónleika á Íslandi næstkomandi mánudagskvöld og verða þeir á KEX Hostel. Julien er rúmlega tvítug tónlistarkona frá Memphis í Tennesee í Bandaríkjunum og hefur hún vakið töluverða athygli beggja vegna Atlantshafsins og einkum fyrir sína hjartnæmu breiðskífu Sprained Ankle sem hún gaf út í í fyrra.

icelandic times  Julien BakerJulien er búin að vera á tónleikaferð til þess að fylgja á eftir breiðskífu sinni og kom meðal annars fram á tónlistarhátíðunum Primavera Sound í Barcelona og á Best Kept Secret í Hollandi. Julien hefur verið að troða upp með ekki ómerkari tónlistarfólki en Beck, Jamie XX, Norah Jones, Ásgeiri, Air, Father John Misty, Glen Hansard o.fl.
Tónleikar Julien verða í Gym og Tonic salnum á KEX Hostel og um upphitun sér Indriði Arnar Ingólfsson úr hljómsveitinni MUCK.
Aðgangseyrir er 1500 krónur og verður selt inn við hurð.