Leiðsögn um sýninguna Neisti

Leiðsögn um sýninguna Neisti
Sunnudag 25. janúar kl. 15

Sunnudaginn 25. janúar kl. 15 mun Ólöf K. Sigurðardóttir forstöðumaður Hafnarborgar leiða fólk um sýninguna Neisti sem nú stendur yfir í Sverrissal safnsins. Á sýningunni eru verk eftir Hönnu Davíðsson (1888 – 1966), merkilega konu sem lifði áhugasömu lífi sem var að mörgu leiti óhefðbundið fyrir íslenska konu á þessum tíma.
neistuHanna bjó og starfaði í Hafnarfirði við upphaf 20. aldar þegar íslenskar konur hlutu kosningarétt árið 1915. Hanna er á meðal þeirra kvenna sem Hrafnhildur Schram fjallar um í bók sinni Huldukonur í íslenskri myndlist en þar varpar hún ljósi á ævi og störf tíu íslenskra kvenna sem námu myndlist erlendis um aldamótin 1900. Engin þeirra gerði myndlist að ævistarfi og aðeins tvær héldu sýningar á verkum sínum. Hanna var fædd Johanne Finnbogason árið 1888, en breytti nafni sínu í Hanna Davíðsson árið 1912 þegar hún gekk í hjónaband. Þó hún hætti að vera listakonan Johanne Finnbogason og yrði frú Hanna Davíðsson voru pensillinn og blýanturinn förunautar hennar nánast alla ævi.
Á sýningunni Neisti eru teikningar og málverk frá ýmsum tímum, litlar myndir sem sýna viðfangsefni úr næsta nágrenni einkum blóm, fólk og umhverfið í Hafnarfirði auk ljósmynda sem varðveittar eru í Byggðasafni Hafnarfjarðar. Ljósmyndirnar hafa fæstar verið sýndar áður og eru af filmum sem fundust undir gólfi Sívertsenhúss í Hafnarfirði. Hanna bjó um tíma í Sívertsenhúsi en það er nú hluti af Byggðasafninu. Á meðal þess sem liggur eftir Hönnu eru skreytingar í Fríkirkjunni í Hafnarfirði.

Nánari upplýsingar veitir:
Áslaug Friðjónsdóttir s. 585 5790