Myndheimur íslenskra póstkorta
Laugardaginn 28. maí kl. 15 verður sýningin „Með kveðju“ opnuð í Myndasal Þjóðminjasafnsins. Á sýningunni eru póstkort úr safneign frá árinu 1898 og allt til dagsins í dag. Kortin eru áhugaverður vitnisburður um fólk, fréttir og tíðaranda. Sýningunni er ætlað að veita yfirlit yfir myndefni á íslenskum póstkortum og opna augu gesta fyrir margbreytileika þeirra og menningarsögulegu hlutverki.

Bréfspjald, spjaldbréf, póstkort eða einfaldlega kort voru meðal þeirra heita sem notuð voru yfir einfalt pappaspjald (140 x 89 mm á stærð) þegar þetta alþjóðlega fyrirbæri var að nema land á Íslandi. Póstkortið fylgdi jarðarbúum alla 20. öldina og fljótlega varð mynd allsráðandi á annarri hlið þess. Sýningunni er ætlað að veita innsýn í myndheim íslenska póstkortsins með völdum dæmum eða syrpum frá tilteknum útgefendum, ljósmyndurum eða teiknurum en líka af einstökum efnisflokkum. Það er fjölbreyttur og áhugaverður heimur að kynnast. Eftirtektarvert er að ólíkt því sem ætla mætti er póstkortið enn vettvangur alls kyns sköpunar og skilaboða.
When the international phenomenon of the postcard – a simple piece of carton measuring 140 x 89 mm – arrived in Iceland in 1898 it took a few years for it to gain a position in the agricultural society of the time. The postcard became a part of life throughout the 20 th century and is still alive in spite of e-mails, text messages and other social media. The exhibition With regards aims to provide an overview of the themes and subjects of Icelandic postcards, and to open visitors’ eyes to their diversity and their place in cultural history from 1898 until present day.