Nýr yfirkokkur á DILL tekur við staðfestingu á Michelin-stjörnu
Fráfarandi yfirkokkur opnar HOLT
Kári Þorsteinsson tók við sem yfirkokkur á DILL um síðustu áramót og tók við af Ragnari Eiríkssyni. Kári hélt til Danmerkur síðastliðin laugardag til þess að vera við athöfn Michelin-nefndarinnar og tekur við staðfestingu um að DILL heldur Michelin-stjörnu sinni. Athöfnin fer fram í turni Ráðhúss Kaupmannahafnar kl. 17:00 á staðartíma.
Eins og kunnugt er þá hlaut veitingastaðurinn sem staðsettur er á Hverfisgötu 12 fyrstu Michelin-stjörnuna sem íslenskur staður hefur hlotið fyrir ári síðan.
Kári hlaut gott matreiðsluuppeldi frá móður sinni á Hólmavík og tók ákvörðun um að verða matreiðslumaður þegar hann dvaldi sumarlangt í vellystingum Árneshreppi á Ströndum. Kári hefur starfað á DILL í rúmt ár og hefur starfað á Michelin-stöðunum Texture í London og Noma í Kaupmannahöfn.
Ragnar Eiríksson tók við Michelin-stjörnu DILL í fyrra vinnur nú hörðum höndum við að opna HOLT sem er nýr veitingastaður sem opnar á Hótel HOLT 28. febrúar næstkomandi.
Hér er listi yfir þá staði á Norðurlöndunum sem hafa hlotið Michelinstjörnu