Hjálmar Sveinsson, heimspekingur

Leiðsögn með Hjálmari Sveinssyni: Listamaðurinn sem helgaði sig borginni
Sunnudag 25. júní kl. 14.00 í Ásmundarsafni
Hjálmar Sveinsson, heimspekingur og borgarfulltrúi ræðir um list myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar og tengsl hennar við borgarlandið í tengslum við sýninguna List fyrir fólkið í Ásmundarsafni.

Ásmundur vildi hafa verk sín úti í borgarrýminu svo að borgarbúar gætu notið þeirra í sínu hversdagslega lífi. Sennilega á enginn listamaður jafnmörg verk í almenningsrými borgarinnar og Ásmundur.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur