Bræðralag: Ómar Guðjónsson og Tómas R.Einarsson í Hannesarholti

Fimmtudaginn 6. júní kl. 20 efna þeir Ómar Guðjónsson gítarleikari og Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari til tónleika í Hannesarholti og rifja upp dúóplötu sína Bræðralag (2015). Þeir félagar hafa spilað saman í tvo áratugi, ýmist tveir einir eða í fjölmennari hljómsveitum, innanlands og utan: Flatey, Djúpavík, Moskva, Andorra, Berlín, Havana. Í samvinnu þeirra hefur músíkölsk samræða alltaf verið æðsta markmiðið, hvort sem um er að ræða sveiflu, latíntónlist eða ballöður.

RELATED LOCAL SERVICES