Myndasalur í 20 ár | Úr safneign

Sýndar verða ljósmyndir eftir samtímaljósmyndara sem sýnt hafa verk sín í Myndasal frá því hann var opnaður árið 2004.

Sýningarrýmið Myndasalur var opnaður árið 2004. Salurinn hefur verið helgaður samtímaljósmyndun og Þjóðminjasafnið lagt áherslu á að sýna verk sem endurspegla listræna sköpunargáfu ljósmyndara á Íslandi. Fjölmargar samsýningar og einkasýningar á verkum núlifandi ljósmyndara hafa verið settar upp í Myndasal og hefur safnið fengið tvær til fjórar ljósmyndir af hverri sýningu til eignar.

Sá hluti safneingarinnar myndar eins konar yfirliti yfir íslenska samtímaljósmyndun. Á sýningunni Myndasalur í 20 ár getur að líta úrval þess efnis.

Eftirtaldir ljósmyndarar eiga verk á sýningunni:

Agnieszka Sosnowska (1971), Alda Lóa Leifsdóttir (1962), Annie Ling (1984), Bragi Þór Jósefsson (1961), Christopher Taylor (1958), David Barreiro (1982), Einar Falur Ingólfsson (1966), Guðmundur Ingólfsson (1946), Heiða Helgadóttir (1975), Inga Lísa Middelton (1964), Jessica Auer (1978), Katrín Elvarsdóttir (1964), Kristín Bogadóttir (1966), Marinó Thorlacius (1979), Pétur Thomsen (1973), Rúnar Gunnarsson (1944), Sigríður Marrow (1990), Spessi – Sigurþór Hallbjörnsson (1956), Stuart Richardson (1978), Valdimar Thorlacius (1988), Vassilis Triantis (1975), Yrsa Roca Fannberg (1973), Þórdís Erla Ágústsdóttir (1961)

 

RELATED LOCAL SERVICES