Garðálfar frá Laugarvatni í Húsinu á Eyrarbakka

Páska- og vorsýning Byggðasafns Árnesinga er ljósmyndasýningin „Ef garðálfar gætu talað“ en þar gefst gestum tækifæri til að horfa inn í veröld þeirra sem byggðu sér sælureit í hjólhýsabyggð á Laugarvatni. Ljósmyndararnir Þórdís Erla Ágústsdóttir og Sigríður Rut Marrow mynduðu þetta sérstæða samfélag í þrjú sumur. Frá þjóðveginum sást aðeins þyrping hjólhýsa á grónu svæði en þegar inn var komið blasti við margbrotið samfélag; allkyns hýsi, garðpallar, blóm og íbúarnir sjálfir að ógleymdum garðálfunum.

Litríkar myndir sýna samveru, sumar og sælu. Sigríður og Þórdís hafa í sínum verkum gjarnan lagt áherslu á að mynda jaðarmenningu og hverfandi samfélög. Í dag er hjólhýsabyggðin á Laugarvatni aflögð og heimildargildi myndaseríunnar dýrmætt.

„Ef garðálfar gætu talað“ er farandssýning frá Þjóðminjasafni Íslands en þar var sýningin haldin á nýliðnum vetri.

Sýningin verður opnuð laugardaginn 23. mars kl. 14.00 og stendur fram í lok maí.
Páskaopnun safnsins er alla daga frá 23. mars – 1. apríl kl. 13 – 17. Í apríl er safnið opið
allar helgar kl. 13 -17 og frá 1. maí opið alla daga kl. 10-17. Tekið er á móti hópum
samkvæmt samkomulagi.

RELATED LOCAL SERVICES

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0