Harpa – Hringátta

Hringátta er opin frá kl. 11-17:30 alla daga. Sýningin er 20 mínútur að lengd og hleypir starfsfólk miðasölu gestum inn á heila og hálfa tímanum.

Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús kynnir í samstarfi við ARTECHOUSE upplifunarsýninguna HRINGÁTTA / CIRCULEIGHT. Einstök upplifun sem fangar kraftana í náttúru Íslands með framsækinni tækni í myndrænni miðlun, skemmtilegri gagnvirkni og heillandi tónlist.

Sýningin HRINGÁTTA / CIRCULEIGHT er gagnvirk sýning fyrir alla fjölskylduna sem sækir innblástur í hraunið og bergið, vatnið, gróðurinn, þörunga og örverur – andardrátt eldfjallanna og túlkar þannig heillandi hringrás lífsins.

Á meðan á sýningunni stendur eru áhorfendur umvafðir þessum litríka og kvika heimi þar sem töfrandi tónlist Högna Egilssonar magnar upplifunina. Tónlist Högna ásamt nýjustu margmiðlunartækni innsetningar ARTECHOUSE, bjóða áhorfandanum í ógleymanlegt ferðalag.

HRINGÁTTA / CIRCULEIGHT er fyrsta sýning ARTECHOUSE utan Bandaríkjanna og samstarfið við Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhús markar þeirra fyrstu skref í að deila sýn sinni á tæknidrifnar upplifanir í listum á alþjóðlegum vettvangi.

ARTECHOUSE er sjálfstæður nýsköpunarlisthópur sem vinnur í skurðpunkti listar, vísinda og tækni, með starfsstöðar í Washington DC, New York City, Miami og nú einnig í Reykjavík.

Kaupa miða

RELATED LOCAL SERVICES