Tumi Magnússon Largo – presto

Laugardaginn 21. febrúar kl. 15 verður opnuð í Hafnarborg sýning á verkum Tuma Magnússonar. Sýningin ber yfirskriftina Largo – presto.
Á sýningunni eru ný verk eftir Tuma Magnússon sem lengi hefur verið í fremstu röð íslenskra listamanna. Titill sýningarinnar Largo – presto er sóttur í stóra innsetningu sem einkennist af reglubundnum hljóðum og hreyfingu. Ólíkir taktar, hægir og hraðir, sameinast og verða að mótsagnakenndri upplifun af síbylju og kyrrð. Hamarshögg, bank í borð og fótatak eru á meðal þeirra hljóða sem sem hljóma um sali Hafnarborgar og mynda síbreytilegan takt sem svo ferðast um rýmið og tengist átta aðskildum myndflötum.
Verkin á sýningunni bera sterk höfundareinkenni Tuma en hann hefur frá upphafi ferils síns unnið með hversdagslega hluti eða athafnir sem hann sýnir þó ekki á hversdagslegan hátt. En viðfangsefni sín nálgast hann iðulega með einstakri næmni og oft á tíðum hárfínum húmor. Tumi kvaddi sér hljóðs á tímum nýja málverksins og hefur ætíð reynt á þanþol málverksins með því að tengja það rými eða færa lögmál þess um merkingarbæran myndflöt inn í heim kvikra mynda og hljóðs.Tumi - hlid
Tumi Magnússon stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1976 – 1978, í Academie voor Beeldende Kunst í Enschede, í Hollandi og í Granada á Spáni. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1981 í Rauðahúsinu á Akureyri og hefur síðan haldið meira en fjörtíu einkasýningar og átt verk á ótal samsýningum bæði á Íslandi og erlendis. Verk Tuma eru í eigu safna hérlendis og erlendis jafnframt því sem varanleg verk eftir hann hafa verið sett upp í almannarými í Danmörku. Í gegnum árin hefur Tumi verið mikilvirkur myndlistarkennari og gegndi stöðu prófessors um árabil við Listaháskóla Íslands 1999 – 2005 og við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn 2005 – 2011. Tumi býr og starfa jöfnum höndum á Íslandi og í Danmörku.
Sýningin sem nú er í Hafnarborg verður sett upp í MACMO samtímalistasafninu í Montevideo í Uruguay í október næstkomandi. Sýningin er studd af Statens Kunstfond.
Sunnudaginn 22. febrúar kl. 15 verður Tumi Magnússon með listamannsspjall þar sem hann ræðir verk sín og sýninguna við safngesti.

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0