Tvær nýjar sýningar

opnaðar föstudag 26. ágúst kl. 20

Föstudagskvöldið 26. ágúst kl. 20 verða tvær sýningar opnaðar í Hafnarborg. Haustsýning Hafnarborgar 2016, sýningin Tilraun – leir og fleira, í aðalsal safnsins og svo sýning sænska hönnuðarins Jenny Nordberg, 3 – 5 sekúndur – Hröð, handgerð framleiðsla, í Sverrissal Hafnarborgar þar sem hún mun flytja gjörning á opnuninni.

Sýningin Tilraun – leir og fleira er samtal sjónlista við leir þar sem vísað er í ólíka heima iðnaðar, lista, nytjalista og hönnunar. Þátttakendur sýningarinnar koma úr ólíkum starfstéttum sjónlista. Þeir nota allir leir í verkum sínum en voru gefin mismunandi orð til að vinna þau útfrá. Útkoman eru annarsvegar fullgerð verk á meðan önnur sýna rannsókn eða vinnuaðferð. Jenny Nordberg_3to5seconds_04

Sýnendur eru: Aldís Bára Einarsdóttir, Anna Hallin, Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Brynjar Sigurðarson, Búi Bjarmar Aðalsteinsson, Erna Elínbjörg Skúladóttir, Hanna Dís Whitehead, Hildigunnur Birgisdóttir, Daniel Durnin, Garðar Eyjólfsson, Gunnhildur Helgadóttir, Olga Bergmann, Páll Einarsson, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, Sigga Heimis, Sigrún Jóna Norðdahl, Sigurður Guðmundsson, Sigurður Hauksson, Sigurlína Margrét Osuala, Theodóra Alfreðsdóttir og Veronika Sedlmair.

Sýningarstjórn er í höndum hönnunartvíeykisins TOS sem skipað er þeim Hildi Steinþórsdóttur arkitekt og Rúnu Thors vöruhönnuði en hugmynd þeirra að sýningunni var valin úr innsendum tillögum síðastliðið haust þegar kallað var eftir tillögum að haustsýningu í safninu 2016.

Sýningarstjórarnir verða með sýningarstjóraspjall fyrir gesti Hafnarborgar laugardaginn 27. ágúst kl. 14.

StudioHannaWhitehead_pastelTilraun – leir og fleira er sjötta sýningin í haustsýningaröð Hafnarborgar þar sem hugmynd sýningarstjóra er valin úr innsendum tillögum. Áður hafa verið settar upp, sem hluti af sama verkefni, sýningar Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur mannfræðings, Í bili, haustið 2011, sýning Guðna Tómassonar listsagnfræðings, SKIA, haustið 2012, sýning Önnu Maríu Bogadóttur arkitekts, Vísar-húsin í húsinu, haustið 2013, Rás, sýning Helgu Þórsdóttur, haustið 2014 og sýning Aðalheiðar Valgeirsdóttur og Aldísar Arnardóttur listfræðinga, Heimurinn án okkar haustið 2015. Með haustsýningaröðinni vill Hafnarborg skapa farveg fyrir áhugaverðar hugmyndir og vera vettvangur þar sem myndlist fær notið sín mótuð af fjölbreyttum viðhorfum og viðfangsefnum. Hafnarborg kallar nú eftir tillögum að haustsýningu árið 2017. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Hafnarborgar: www.hafnarborg.is
Sýning og gjörningur sænska hönnuðarins Jenny Nordberg, 3 – 5 sekúndur – Hröð, handgerð framleiðsla tekur á hvernig neyslu og framleiðslu er háttað í dag og hvernig gera má betur í framtíðinni. Í gjörningi sínum í Hafnarborg setur hún upp framleiðsluferli þar sem hún lætur reyna á hvernig ólíkir þættir hins handgerða og fjöldaframleidda geta haldist í hendur.

Jenny Nordberg er iðnhönnuður búsett í Svíþjóð sem hefur hlotið viðurkenningar og lof sem framsækinn hönnuður á alþjóðavettvangi. Jenny staðsetur sig á milli myndlistar og hönnunar og leitast við að víkka út hugmyndir samtímans um hönnun og hönnuði. Verkefnið er styrkt af sænska sendiráðinu á Íslandi.

Nánari upplýsingar hjá:
Áslaugu Friðjónsdóttur, upplýsingafulltrúa Hafnarborgar, s. 585 5790,

Hildi Steinþórsdóttur s. 862 2879 og Rúnu Thors s. 865 8795. ,
sýningarstjórum sýningarinnar Tilraun – leir og fleira.

Jenny Nordberg kemur til landsins miðvikudaginn 24. ágúst hægt er að nálgast hana í gegnum Hafnarborg.